Hildur, tjaldhælar og vók-barsmíðar

Best er að lemja þá sem andmæla stefnu stjórnvalda í hælisleitendamálum, skrifar Hildur Lillendahl. Nokkur framför hjá Hildi sem á fyrra skeiði sínu sem vók-álitsgjafi vinstrimanna mælti með að tjaldhælar væru notaðir á konu sem henni var í nöp við.

Ásamt barsmíðum mælir Hildur með hæðni og sniðgöngu gagnvart fólki sem andmælir stefnu stjórnvalda í hælismálum.

Ummæli Hildar, um að berja skuli fólk með rangar skoðanir, staðfesta umræðu síðustu daga um öngstræti vók-orðræðunnar. Vinstrimenn eru ábyrgir fyrir vókinu. 

Vók er ógnarorðræða sem gengur út á að hræða almenning frá því að segja sína skoðun. Afgerandi meirihluti þjóðarinnar er á móti stefnu ríkisstjórnar Kristrúnar í hælisleitendamálum. Fjölsóttur mótmælafundur í lok maí á Austurvelli sýndi að fólk er tilbúið að leggja á sig það ómak að gera sér ferð niður í miðbæ Reykjavíkur á sólbjörtum degi sem mætti nýta til margs annars skemmtilegra en mótmæla stjórnvöldum. En almenningur er óðum að vakna til vitundar um að hælismálin eru í ólestri og lagði á sig að ferð niður í miðbæinn að tjá hug sinn með íslenska fánann í hönd.

Vinstrimenn eru meira og minna undir hælnum á vók-hugmyndafræðinni og þar er einn hornsteinninn opin landamæri. Hildur og félagar átta sig á samhenginu og hafa sem andsvar heilaga þrenningu vóksins; smánun, sniðgöngu og ofbeldi.

Hatursorðan, sem Hildur stendur fyrir, er ýkt útgáfa af viðbrögðum talsmanna stjórnarmeirihlutans, eins og Ágústa Árnadóttir skrifaði: þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana. Logi Einarsson fjölmiðlaráðherra er á sömu slóðum og Hildur þótt orðfærið sé klætt í öfgalausan lagatexta. Loga er í nöp við ákveðna fjölmiðla. Hvað gerir hann? Jú, breytir lögum til að þeir fái minni ríkisstyrk en hinir sem leggjast á vók-árarnar með vinstrimönnum.

Umræðan síðustu daga meðal vinstrimanna lýsir örvæntingu. Þeir átta sig á að slagurinn um opin landamæri er tapaður. Önnur helg vé vók-vinstrisins, t.d. fabúlan um manngert veður og transfræðin, liggja einnig undir ágjöf. Hótanir vók-liða um að beita ofbeldi þegar áhrifamátt hæðni og sniðgöngu þrýtur hittir vókið sjálft fyrir. Fólk sér hvað vókið stendur fyrir og yfirgefur málstaðinn.

 

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Fólkið á Austurvelli 31.mai er sagt ÖFGAhægri en Hildur Lillendahl er mainstream. Hvert er íslenskt samfélag komið?

Ragnhildur Kolka, 10.6.2025 kl. 12:11

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband