Kristrún, Keir Starmer og vók-orðræðan

Kristrún Frostadóttir og Keir Starmer eru forsætisráðherrar Íslands og Bretlands í umboði krataflokka, Samfylkingar og Verkamannaflokksins. Bæði eiga erfitt uppdráttar að lóðsa flokka sína frá vók-fræðum yfir í eitthvað sem mætti kallast málefnaleg umræða er tekur tillit til þjóðarhagsmuna.

Starmer reyndi um daginn að vekja máls á að hælisleitendur frá framandi slóðum (les: múslímaríkjum) væru orðnir það margir í Bretlandi að þjóðmenningunni stendur ógn af. Borgaralega útgáfan Telegraph er sammála Starmer, en bendir á í leiðara, að samkvæmt skilgreiningu breskrar opinberrar stofnunar er forsætisráðherra Bretlands sekur um ,,menningarlega þjóðernishyggju og ætti að flokkast sem hægri öfgamaður." 

Fyrir rúmri viku var hér á Íslandi fundur á Austurvelli til að andmæla óheftum straumi hælisleitenda inn í landið. Aðstandendur mótmælanna fengu yfir holskeflu af formælingum. Rauði þráðurinn í reiðilestrinum var að þeir sem andmæltu opnum landamærum væru rasistar.

Ágústa Árnadóttir skrifaði í Vísi ádrepu til valdafólksins sem notuðu ógnarorðræðu í þeim tilgangi að fæla afgerandi meirihluta þjóðarinnar frá því að segja sína meiningu.

Jóhanna Jakobsdóttir útskýrir hvernig fáir en frekir vókistar stjórna umræðunni:

Afleiðingarnar eru þögul en alltumlykjandi stjórnlyndisleg valdboðun sem teygir anga sína um allt samfélagið, inn í stofnanir og fjölmiðla sem hefur áhrif á hvernig fólk talar og tjáir sig um raunveruleikann og tilfinningin er sú að einungis forskrifaðar skoðanir séu leyfðar. Þetta gerist ekki með grasrót eins og einhverjir vilja halda fram, heldur ofan frá fyrir tilstilli háværs minnihluta og það gjarnan með miklu offorsi. Á tímabili var það svo að ef þú marseraðir ekki alveg í takt, máttirðu í besta falli eiga yfir höfði þér að vera álitinn forpokaður, jafnvel fáfróður afturhaldsseggur en þegar verst lét lá ógnin af félagslegri bannfæringu í loftinu.

Hægfara kratar eins og Kristrún og Starmer standa frammi fyrir tveim kostum. Í fyrsta lagi að segja sig frá vókinu með afgerandi hætti. Í öðru lagi að ganga í vók-takti fram af bjargbrúninni. Vókið er komið á síðasta söludag. Eins og Jóhanna segir í tilvitnaðri grein:

Það sem helst situr eftir þegar orðagjálfrið er flysjað utan af hugmyndafræðinni er prinsippleysi, óteljandi þversagnir, hræsni, yfirborðsmennska, verkstol, raunveruleikafirring, barnaskapur og þegar verst lætur; mannfyrirlitning og siðleysi.

Spurningin er hvað tekur við eftir vókið. Ef hófstilltir vinstrimenn sjá að sér í tíma gæti orðið bandalag milli þeirra og hófsemdarmanna á hægri kantinum. Það bandalag myndi halda pólitísku miðjunni í jafnvægi. Hitt er líklegra, eins og sakir standa, að sveiflan verði kröftug til hægri og miðjan tapast. Öfgar ala af sér öfgar.


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband