Guð, lýðræði og íslam

Lýðræði og múslímatrú, íslam, fara illa saman. Stallsystir Kristrúnar forsætis, Mette Fredriksen í Danmörku, tilkynnir að bænaherbergi í háskólum skulu aflögð. Bænaherbergin eru bergmálshellir múslíma sem kjósa að samlagast ekki vestrænum ríkjum er hafa tekið á móti múslímum á flótta undan stjórnarfari íslam.

Kristin trúarmenning veraldarvæddist eftir miðaldir. Vestræn kristni síðustu tvær aldir eða svo aðgreinir lýðræði og réttarríki frá trúarsannfæringu borgaranna. Múslímsk trúarmenning fór á mis við veraldarvæðinguna. Íslömsk ríki samþykkja ekki mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Mannréttindaskrá múslímaríkja er Kairó-yfirlýsingin. Fyrsta setningin segir íslam og allah æðsta yfirvaldið. Í íslam eru mannréttindi ekki allra heldur frátekin fyrir rétttrúaðra - fylgjendur spámannsins.

Árni Már Jensson skrifar í þriðjudagsútgáfu Morgunblaðsins grein um lýðræði og íslam. Tilfallandi leyfir sér að birta lykilefnisgreinar:

Hug­mynda­fræði íslams tek­ur yfir flest svið mann­legr­ar hugs­un­ar og at­gervis háð þeirri al­trú að Kór­an­inn sé bein og ófrá­víkj­an­leg til­skip­un Allah til Múhameðs um hvernig mann­leg sam­fé­lög eigi að vera og muni verða í tím­ans rás. Íslam er þannig full­mótað alræði (tota­litari­an­ism) sem inni­held­ur trú­ar­kerfi, stjórn­mál, stjórn­skip­un, lög, rétt­ar­kerfi, refsi­kerfi, upp­eldis­kerfi, mennta­kerfi, fé­lags­kerfi og kerfi menn­ing­ar, lista og sam­skipta. Með öðrum orðum er tak­markað rými fyr­ir frjálsa hugs­un, at­gervi og sköp­un inn­an íslams, sem stang­ast á við reglu og túlk­un­ar­kerfi trú­arklerka grund­vallað á Kór­an­in­um, Sira og Hadíðunum. [...]

Kjarn­inn í út­breiðslu íslams er jí­had, sem grund­vall­ast á hug­mynd­inni um bar­áttu fyr­ir trú. Þótt ýms­ir fylgj­end­ur íslams leggi þann skiln­ing í jí­had að það tákni ein­ung­is and­lega og menn­ing­ar­lega bar­áttu hef­ur sag­an sýnt það sem ritn­ing­ar íslams einnig upp­lýsa, að jí­had er líka beitt í formi póli­tísks áróðurs, hræðslu­áróðurs, hryðju­verka og styrj­alda. [...]

Íslam grund­vall­ast til að mynda á hefnd­ar­rétti og hug­mynd­inni um yf­ir­burði fylgj­endanna yfir öðru fólki, trú­ar­brögðum og menn­ing­ar­heim­um, á sama tíma og kristni grund­vall­ast á auðmýkt, kær­leika, fyr­ir­gefn­ingu og mis­kunn­semi. And­stæðurn­ar eru hróp­andi – hliðstæðurn­ar eru hverf­andi. [...]

Íslam skil­grein­ir heims­mynd­ina í stór­um drátt­um í tvo meg­in­hluta: Ann­ars veg­ar í 'Dar al-Islam', sem tákn­ar 'Hús friðar­ins' sem fylgj­end­ur íslams trúa að sé ei­líf friðsæld þar sem íslam ræður ríkj­um með sja­ría­l­ög­um. Hins veg­ar í 'Dar al-Har­b', sem tákn­ar 'Hús ófriðar eða stríðs' sem fylgj­end­ur íslams trúa að sé vegna þess að ríkið er ekki að meiri­hluta und­ir íslam og sja­ría­l­ög­um

 Fyrir bráðum tíu árum bloggaði tilfallandi um vesturlönd og múslímsku mótsögnina:

Vestræn samfélög reyndu lengi vel að mæta múslímum með umburðalyndi. Undir formerkjum fjölmenningar áttu allir að finna sína fjöl í samfélaginu: kristnir, gyðingar, múslímar, ásatrúarmenn, búddistar og vantrúaðir. Múslímar notuðu fjölmenningarsamfélagið til að koma sér fyrir á vesturlöndum og í framhaldi gera kröfu um múslímavæðingu þar sem vestræn grunngildi, t.d. tjáningarfrelsi, skyldu víkja ef múslímar móðguðust. [...]

Múslímska mótsögnin sem vesturlönd standa frammi fyrri er þessi: öfgatrú sem notar trúfrelsi til að grafa undan vestrænum mannréttindum verður ekki stöðvuð nema með takmörkun á trúfrelsi. En takmörkun á trúfrelsi er skerðing á mannréttindum.

Evrópa stendur bjargarlaus gagnvart mótsögninni. Ísland getur enn gætt sín og ekki leyft innflutning á múslímsku mótsögninni.

Færslan er skrifuð 2016. Núna er 2025. Ísland er á hraðri leið að búa sér til ástand sem slítur í sundur samfélagsfriðinn. Íslensk stjórnmál hafa brugðist íslensku þjóðinni.


mbl.is Vill fjarlægja bænaherbergi úr háskólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Dominus Sanctus.

Þetta eru allt saman góðar hugleiðingar.

Nú er það aðal spurningin;

ER "GUÐ" MEÐ EINHVERAJAR HÖFUÐSTÖÐVAR HÉR Á JÖRÐU? 

Ef að við lítum svo á að HVÍTI KÓNGURINN á skákborðunum séu höfuðstöðvar "GUÐS;

gætu jarðarbúar komið sér saman um HVAR  sá fermeter/ bygging 

ætti að vera sem að ætti að vera hin BESTA TENGING JARÐARBÚA VIÐ GUÐ? 

Dominus Sanctus., 6.6.2025 kl. 08:12

2 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Jesús gekk inn í Musterið í Jerúsalem og mælti við þá:

Ritað er: Hús mitt á að vera bænahús, en þér gjörið það að ræningjabæli. (Mt. 21:13).

Guðmundur Örn Ragnarsson, 6.6.2025 kl. 10:07

3 Smámynd: Dominus Sanctus.

Viljum við ekki frekar að heimareitur HVITA KÓNGSINS 

á ÍSLANDI 

frekar en í Jerusalem? 

Dominus Sanctus., 6.6.2025 kl. 11:59

4 Smámynd: Hörður Þormar

Hamed Abdel-Samad hefur mikið gagnrýnt Islam og Múhameð, bæði í ræðu og riti. Hann hefur ritað bækur, haldið fyrirlestra, verið í viðtölum og tekið þátt í ótal umræðum þar sem fjallað hefur verið um spámanninn og fylgjendur hans.  Hamed Abdel-Samad er egypskur að ætt, sonur múslimaklerks og lærði Kóraninn utanbókar í æsku. Hann gekk ungur til liðs við Bræðralag múslima en fór svo til náms í Þýskalandi þar sem hann hefur dvalist síðan, lengst af í vernd lögreglu. Ég hef undanfarið reynt að vekja athygli á H.Abdel-Samad og hér er viðtal við hann, 9 ára gamalt en mun enn vera í fullu gildi.                             The case against the Prophet | DW News           

Hörður Þormar, 6.6.2025 kl. 18:23

5 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Hvaða Lýgræði?

Guðjón E. Hreinberg, 6.6.2025 kl. 18:48

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband