Jón Gnarr útvalinn og óseðjandi

Launahækkun Jóns Gnarr upp á 153 þúsund kr. á mánuði var sett í forgang af Kristrúnu og félögum í stjórnarmeirihlutanum. Þingfararkaup Jóns er um ein og hálf milljón á mánuði en hann vildi aukalega rúmlega 150 þúsund krónur. Undir þeim formerkjum að sumir eru jafnari en aðrir er þess freistað að keyra launahækkun Jóns í gegn á síðustu dögum þingsins.

Fyrir hvað á að hækka laun Jóns? Stutta svarið er: fyrir ekkert. Jón á að fá launahækkun fyrir að vera formaður í framtíðarnefnd. En nefndin hefur engin verkefni. Í viðtengdri frétt er snyrtilegt orðalag um opinbera nefnd til að réttlæta mútugjafir úr ríkissjóði:

Nefnd­in er með óljóst hlut­verk, ólíkt fasta­nefnd­um þings­ins, og er það nefnd­ar­inn­ar sjálfr­ar að hafa frum­kvæði að þeim mál­um sem hún tek­ur til um­fjöll­un­ar og vinnslu.

Jón Gnarr er grínisti og fær 1,5 m.kr. í mánaðarkaup sem þingmaður Viðreisnar. Grínlaust vill hann 150 þúsund krónur aukalega fyrir formennsku í nefnd sem hefur ekkert hlutverk.

Víkjum þá að vinnandi fólki sem skapar raunverðmæti en ekki aulabrandara. Eiríkur heitir maður og er Ólafsson. Hann er Fáskrúðsfirðingur. Hryggstykkið í plássinu er Loðnuvinnslan sem að mestu er í eigu 350 manna samvinnufélags heimamanna. Loðnuvinnslan rekur útgerð og borgar 250 milljónir í auðlindaskatt, jafngildir 700 þúsund krónum á hvern félagsmann. Kristrún og félagar í ríkisstjórninni ætla að tvöfalda skattinn þannig að hver félagsmaður borgi 1,4 milljónir, skrifar Eiríkur í Vísisgrein fyrir fjórum dögum.

Fyrirsögnin á grein Eiríks er Hinn óseðjandi. Ríkisstjórn Kristrúnar tvöfaldar skatta á vinnandi menn til að tryggja framfærslu hinna óseðjandi útvöldu sem dýfa helst ekki hendi i kalt vatn. Þeir sitja í nefndum án verkefna á ríkistryggðum launum.

 


mbl.is Launahækkun Jóns Gnarr út um þúfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Þessi ríkisstjórn er bara

"Helvítis fokking fokk"

Sigurður Kristján Hjaltested, 5.6.2025 kl. 09:25

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það eru engar krøfur til vits/getu þingmanna lengur. Humorslaus flokkur fékk grínista til að hressa upp á ímyndina og það kostar. En er ímyndin þess virði? Hver eru þingmál grinistans? 

Ragnhildur Kolka, 5.6.2025 kl. 09:49

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband