Stoltir fánaberar, rasisti sem hrósyrði

Stórfundur gegn hælisiðnaðinum á laugardag og könnun sem sýnir 60 prósent þjóðarinnar sammála Íslandi þvert á flokka veldur usla meðal talsmanna opinna landamæra. Þingmaður Samfylkingar kallar meirihluta þjóðarinnar rasista og frá heimilishaldi Helgu Völu fyrrum Samfó-þingmanns og hælislögmanns koma sambærileg skot úr ritbyssu eiginmanns og dóttur.

Á Facebook fann tilfallandi færslu sem gefur hugboð um hvað meirihluti þjóðarinnar hugsar:

Ætli ég sé þá ekki bara rasisti?

Af því mér hugnast ekki að flytja inn glæpagengi né fólk sem aðhyllist glæpsamleg trúarbrögð. Mér hugnast ekki kvenfyrirlitning, barnabrúðkaup né kynfæralimlesting. Er ég rasisti af því að mér finnst sjálfsagt að fólk sem flyst inn í landið okkar komi með því hugarfari að aðlagast samfélaginu læri tungu og virði siði [þeirra] sem fyrir eru.

Höfundurinn játast skilgreiningu hrædda fólksins á rasisma, sem notar orðið til að löðrunga málefnalega umræðu. Það er ekki rasismi að þykja vænt um þjóðmenninguna og gjalda varhug við óheftu innflæði hælisleitenda. Rasisti verður hrósyrði.

Nokkur hundruð manns mættu á Austurvöll með þjóðfánann til að sýna væntumþykju fyrir því sem er íslenskt. Fundarmenn voru þversnið þjóðarinnar, stoltir fánaberar. 

 

 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég tek undir þessi ummæli rasistans og viðurkenni þar með að ég sé víst líka rasisti. 

Ragnhildur Kolka, 3.6.2025 kl. 08:18

2 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir góð færsla að venju Páll. En það var um þúsund manns á útifundinum. Allt tal RÚV um ryskingar milli hópa er röng. Það var lítill hópur No border fólks sem var með leiðindi þeytti t.d. sírenu til að trufla og koma í veg fyrir að heyrðist í ræðumönnum. Það eru ekki ryskingar heldur tilburðir öfgafólks til að koma í veg fyrir umræðu. En eðlilega sér RÚV þetta sínum augum. 

Jón Magnússon, 3.6.2025 kl. 08:57

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Iss!Ég hef verið það svo lengi.

Helga Kristjánsdóttir, 3.6.2025 kl. 15:38

4 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

VONDA fólkið í okkar íslenska þjóðfélagi hefur lengi verið kallað GÓÐA fólkið í háði. Það er einnig kennt við woke.

Þetta fólk er ekki kristinnar trúar og hafnar einnig hinum gyðingkristna menningararfi sem einkennir okkar íslenska samfélag.

Það er fólkið sem hefur heimtað annan þjóðsöng, nýja stjórnarskrá og vill jafnvel annan þjóðfána sem ekki ber krossmerkið. Það vill börnin okkar séu drepin í móðurkvið og berst í ákafa fyrir að skipta um þjóð í landinu, þess vegna vill það að landamærin séu opin.

Þetta fólk hatar Gyðinga og Ísrael. Þess vegna stendur það með Hamas hryðjuverkamönnunum á Gaza en kallar okkur, sem erum á öndverðu meiði RASISTA.

Guðmundur Örn Ragnarsson, 3.6.2025 kl. 16:08

5 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Allt baráttufólk, hugsjónafólk og baráttusamtök skilgreina fyrst hver vandinn er og fyrir hvað skal berjast. Það að vera rasisti þýðir að aðhyllast kynþáttaskilgreininguna í fyrsta lagi, en síðan er óhreina merkingin, skítamerkingin að vera lítt sáttur við þá sem eru ekki með sama hörundslit og maður sjálfur. Fæstir viðurkenna það, en grunnt er á því góða bæði hjá vinstraliðinu og hægraliðinu. Oft er það svo að þeir sem æpa og hrópa hæst um að aðrir séu rasistar eru það sjálfir, finna skítablettina af því tagi í eigin sál en reyna að fela það með andstæðum upphrópunum.

Fyrir mér er þetta bara sjálfsagt mál, að maður er fífl ef maður viðurkennir ekki að fólk er af mörgum kynþáttum, - með mismunandi erfðaeiginleika. Sumir segja að mismunandi kynþættir hafi komið frá mörgum hnöttum, það gæti verið einmitt rétt. Ég hitti þýzka konu í Ásatrúarfélaginu fyrir tæplega 10 árum sem var altalandi á íslenzku og hafði verið hér á landi í allnokkur ár. Ég fór að ræða um þetta og þá fór hún að tala um að það væri alveg hægt að tala um miklu fleiri en þrjá kynþætti, gulan, brúnan og hvítan, þar sem mörg þjóðabrot finnast þar innanborðs.

Mér finnst ennfremur að maður hafi betri stjórn á tilfinningum sínum með því að viðurkenna þær, og að viðurkenna veruleikann sem er svona. 

Ég lærði mikið af baráttu hinseginfólks og femínista. Vilji maður stuðla að sigri eða afkomu eigin kynþáttar þarf að skilgreina og vera ekki hræddur við skömm eða hótanir.

Aríar eru í miklum minnihluta á jörðinni, sérstaklega háaríar, það sama hafa femínistar og hinseginfólk notað til að fá stuðning og samúð, og það er hægt að nota sem rök líka í þessu.

Asíubúar eru flestir.

Eitt sinn voru hvítir menn í meirihluta á jörðinni og algjörum meirihluta. Marxistar og Frankfurt skólinn hafa breytt þessu. 

Útrýmingarstefna gegn bleiknefjum er í gangi og það er augljóst.

Þetta er réttlætismál.

Það er skömm þeirra sem beita ofbeldi að hafa ekki stjórn á sér. 

En það er einnig vegna þess að Hitler hafði rétt fyrir sér, með kristninni urðu bleiknefjar að sæta ofsóknum. Sálfræðihernaður sektarkenndarinnar hefur fylgt kristninni, skömm yfir kynhvöt og eðlilegum dýrslegum hvötum mannlífsins.

Ef litið er til ofbeldisglæpa þá sést að yfirleitt er ofbeldi framið gegn fólki sem er nákomið þeim sem eru gerendur. Þessvegna held ég að hatur og ofbeldi gegn fólki af öðrum kynþáttum sé afleiðing, ekki fólki eiginlegt, heldur eitthvað sem gerist þegar undirliggjandi er reiði út af fátækt og óréttlæti í þjóðfélaginu almennt.

Þó hafa rannsóknir sýnt að börn hafa kynþáttaskyn og fullorðnir þar með líka, nema reynt er að bæla þetta af "góða fólkinu" (sem þykist betra en aðrir), velja sér leikfélaga með sama útlit. Þannig myndaflokkur var sýndur í RÚV fyrir fáeinum árum, brezkur.

Bezta leiðin til að hindra að rasismi leiði til glæpa er að viðurkenna slíkar tilfinningar og hætta að gera þær skammarlegar.

Maður á að virða og elska annað fólk eins og Kristur sagði, en það má ræða um það hvort maður kjósi einsleitt eða fjölbreytt samfélag.

Það á ekki að þurfa að vera skammarlegt að vilja vernda mannlega stofna eins og stofna kinda eða annarra dýra.

Síðan er annað, með tímanum verða allir svartir ef blöndunarstefnan heldur áfram, því sá litur er ráðandi ef til blöndunar kemur. Þannig að sú stefna leiðir ekki til fjölbreytni heldur einsleitni.

 

Ingólfur Sigurðsson, 3.6.2025 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband