Ísland þvert á flokka 60% þjóðarinnar

17. júní-stemning var á Austurvelli á laugardag. Nokkur hundruð, sumir segja 300-400, aðrir nefna hærri tölu, andmæltu opnum landamærum og stjórnlausum innflutningi hælisleitenda. Yfirskrift mótmælanna er Ísland þvert á flokka. Ný skoðanakönnun sýnir að Ísland þvert á flokka er 60% þjóðarinnar.

Samkvæmt frásögn af vettvangi var þverskurður þjóðarinnar mættur:

Amma og afi, mamma og pabbi, sonur og dóttir, gamalt fólk og ungt fólk og allt þar á  milli mætti á Austurvöll í dag til að mótmæla tómlæti stjórnmálamanna (ekki allra en flestra) í landamæramálum landsins og sem og vanrækslu verndun íslenskrar menningar og tungu. Þetta áttu að vera friðsamleg mótmæli og þau voru það.

Afgerandi meirihluti þjóðarinnar telur nóg komið í undanlátssemi gagnvart hælisiðnaðinum sem flytur inn fólk af framandi slóðum til að setjast upp á skattgreiðendur. Óöld í Breiðholti og sveðjumaður í Úlfársdal eru ekki einstök atvik heldur hluti af mynstri þar sem grunngerð samfélagins er í húfi.

Á meðan mótmælt er á Austurvelli eru helstu ráðherrar ríkisstjórnarinnar uppteknir af vandamálum útlanda. Kristrún forsætis vill leysa Úkraínustríðið og Þorgerður Katrín utanríkis er kappsöm um eilífðardeilur Ísraela og araba. Þær sjást tíðum í erlendum stórborgum að skipta sér af málum sem hvorki koma Íslendingum við né eru nokkrar líkur á að íslenskt ráðherravald breyti atburðarás. Ráðherrastöllur eru í innbyrðis samkeppni um að vera alþjóðlega marktækar á flokksmælikvarða Samfylkingar annars vegar og hins vegar Viðreisnar. Mannjöfnuður kúlu og Kviku í útlöndum er til marks um veruleikafirringu.

Ísland þvert á flokka og skoðanakönnunin sýnir að þolinmæðin er þrotin gagnvart íslensku yfirvaldi sem heldur mest til í útlöndum en glímir ekki við brýnan vanda á Fróni.


mbl.is Meira en 60% telja of marga fá hér hæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Líklega taka 60% þjóðarinnar undir bæn Margrétar Friðriksdóttur sem hún flutti á útifundinum:

Ó Guð vors land,

Ó land vors Guðs.

Þökk sé þér Drottinn að þú hefur blessað þjóð okkar í meir en 100 ár, eftir að við tókum okkur krossfána þinn, og þjóðsöng sem er lofsöngur til þín.

Þú sást á okkur aumur og blessaðir okkur til allsnægta. Fyrirgef okkur að hafa gleymt hver gaf, og hver getur svo auðveldlega tekið aftur.

Megi þú Faðir snerta hjörtun í þessu landi, og snúa þjóð þinni frá villu síns vegar. Rek burt af landi voru andaverur vonskunnar, og alla heimsdrottna myrkursins. Snert illvirkja og óvildarmenn sem hingað hafa komið og bjarga þeim frá glötun.

Guðmundur Örn Ragnarsson, 2.6.2025 kl. 13:47

2 Smámynd: Baldur Gunnarsson

Ó Guð vors lands, 

Baldur Gunnarsson, 3.6.2025 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband