Föstudagur, 30. maí 2025
Samtökin 78 njósna um fólk og krefjast slaufunar
Samtökin 78 stunda stafrænar njósnir á samskiptum fólks og finna leiðir til að koma höggi á þá sem ekki sýna transhugmyndafræðinni skilyrðislausa hollustu. Norðlensk kona varð fyrir barðinu á Stasi-aðferðum lífsskoðunarfélagsins. Sjálfboðavinna í þágu innflytjenda er í uppnámi vegna aðgerða Samtakanna 78.
Norðlenska konan vann sér til óhelgi að hafa ranga skoðun á transmálum í umræðum á samfélagsmiðlum. Samtökin 78 flettu upp á konunni og komust að því að hún vann í sjálfboðavinnu að aðstoða erlendar konur aðlagast íslensku samfélagi. Sjálfboðavinnan er í samstarfi við Amtsbókasafnið á Akureyri. Framkvæmdastjóri Samtakanna 78, Kári Garðarsson, skrifaði harðort bréf norður sem lýkur með þessu orðum:
Er það krafa Samtakanna 78 að forsvarsfólk Amtsbókasafnsins taki föstum tökum á þeirri stöðu sem upp er komin.
Þetta er krafa um slaufun. Samtökin 78 njósnuðu um konu, fundu snöggan blett, að hún starfaði í sjálfboðavinnu í samstarfi við opinberan aðila, Amtsbókasafnið, og krefjast að konunni verði úthýst.
Netmiðillinn Þjóðólfur fjallar um málið undir fyrirsögninni: Er Samtökunum 78 eitthvað í nöp við innflytjendur? Þjóðólfur birtir helstu gögn málsins.
Samtökin 78 eru nær alfarið rekin fyrir opinbert fé. Þegar fyrir liggur að samtökin stunda stafrænar njósnir á fólki út í bæ og standa fyrir skemmdarverkum á frjálsu félagastarfi, sem unnið er í sjálfboðavinnu, hljóta kjörnir fulltrúar að endurskoða fjárframlög til samtakanna. Transnjósnir á ekki að fjármagna með opinberu fé. Í ljósi sérhæfingarinnar er nærtækt að endurskíra lífsskoðunarfélagið, nefna það Stasi 78.
Athugasemdir
Starfsmenn Akureyrarbæjar eru eins og hlaupatíkur fyrir Stasi 78. Ekki er langt síðan Eva Hauksdóttir lögmaður setti ofan í við skólastjóra sem var á sömu vegferð og starfsmenn bæjarins sem létu Stasi 78 segja sér fyrir verkum.
Um tjáningarfrelsi kennara - Vísir
Helga Dögg Sverrisdóttir, 30.5.2025 kl. 07:56
AMEN. Á eftir efninu.
Dominus Sanctus., 30.5.2025 kl. 08:01
það er með ólíkindum að þessi samtök um sérstaka tegund af kynlífi skuli hafa fengið á annað hundrað milljónir í styrki frá ríkinu undanfarin ár. Allir þeir dómar sem hafa fallið í Hæstarétti undanfarin ár vegna hatursorðræðu eru vegna kæru samtakanna 78. Þar er raunar ekki um miklar sakir að ræða og að mínu mati er fólk ranglega dæmt í lágar sektir þar sem ummælin eru ekki annað en eðlileg þjóðfélagsleg umræða sem á erindi til almennings.
En fólk hafði gagnrýnt kynfræðslu samtakanna í skólum.
Samtökin halda því fram að það sé vaxandi óþol gagnvart hinsegi fólki. Það er ekki rétt. Íslenska samfélagið hefur um langt skeið viðurkennt réttindi samkynhneigðs fólks og ekki amast við þeim. Hins vegar eru ýmsir ósáttir við framgöngu samtakanna undanfarin ár ekki síst vegna trúarboðunar trans hugmyndafræðinnar.
Jón Magnússon, 30.5.2025 kl. 09:18
Þegar kynvillingar stjórna ríkinu, endar það eins og í Gíbeu forðum.
--Sagnfræðin
Guðjón E. Hreinberg, 30.5.2025 kl. 14:48
Það var akkúrat enginn að amast við trans fyrr en þeim óx fiskur um hrygg og fóru að gera kröfur um sérréttindi. Þetta er sama hegðun og múslimar gera þegar þeir ná vissum fjölda.
Ef mark er takandi á að mannréttindi séu algild á að afnema allar undantekningar og sérréttindi.
Ragnhildur Kolka, 30.5.2025 kl. 15:12
Leggjum á minnið hegðun transfólks þegar þau fara að finna til sín,brínum þá ráðamenn að afnema undantekningar og sérréttindi. skrif þeirra fróðu eru alltaf svo gagnleg.
Helga Kristjánsdóttir, 30.5.2025 kl. 17:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning