Sema Erla, Hamas og Íslandsbanki

Sema Erla Serdaroglu rekur samtökin Solaris og safnaði í fyrra 93 milljónum króna í þágu Palestínuaraba. Grunur er um peningaþvætti og rannsakar lögreglan málið. Tilfallandi sagði frá greinargerð ríkissaksóknara:

Markmið Solaris var að safna 50 milljónum króna. Söfnun hófst 7. febrúar 2024 lauk formlega 4. mars sama ár og höfðu þá safnast 50 milljónir króna. Í rökstuðningi ríkissaksóknara til lögreglunnar, um að sakamálarannsókn skuli haldið áfram, kemur fram að tugir milljóna króna hafi flætt inn á reikning Solaris í vikur og mánuði eftir að söfnun lauk.

,,Fram til 4. september 2024 söfnuðust 93.338.100 kr.," segir í greinargerðinni. Hvaðan komu rúmlega 43 milljónir króna inn á reikning Solaris, hálfu ári eftir að formlegri söfnun lauk og 50 milljón kr. markinu var náð? Allir sem þekkja til fjársafnana af þessum toga vita að eftir að söfnun lýkur kemur sáralítið ef nokkuð til viðbótar inn á söfnunarreikning. Í greinargerð ríkissaksóknara segir að ,,sætir það furðu" að Solaris hefði ,,viðvarandi innstreymi fjármagns."

Viðskiptablaðið skrifar frétt um að Sema Erla sé stórkaupandi hlutafjár Íslandsbanka í nýlegu útboði, keypti fyrir hámarksfjárhæð, 20 milljónir króna.

Í blogginu, sem vitnað er í hér að ofan, segir:

Glæpahópar og hryðjuverkasamtök nota gjarnan góðgerðar- og mannúðarsamtök til að þvætta peninga. Söfnun á peningum frá almenningi er notuð til að gera illa fengið fé hreint. Ólögmætir peningar fara inn á reikninginn en út koma peningar sem hægt er að koma í umferð í þágu málefna á skjön við lög og reglur.

Í hnotskurn: Sema Erla er undir lögreglurannsókn vegna gruns um peningaþvætti. Hún kaupir fyrir 20 milljónir hlut í Íslandsbanka á eigin kennitölu. Í útboðinu er vitað af kennitölusöfnun fjársterkra aðila.

Fjármálastofnanir eru lykilaðilar í peningaþvætti.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Lengi lifi Marxískur kommúnisminn, sem rænt hefur alla sjóði, og bannað er að benda á.

Guðjón E. Hreinberg, 29.5.2025 kl. 12:29

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Íslendingar eru svo óheppnir að hafa gjörsamlega vanhæfan ríkissaksóknara

sem finnst meira áríðandi að skoða hatursorðræðu þegar kemur að því

ef fólk segir sannleikan um kynin öll og transþvæluna.

Á þeim bæ verður ekkert gert. En hjá alvöru ríkissaksóknara væri

Sema og faðir hennar látin gefa upp hvar og hvernig þeim áskotnuðust

40 milljónir bara allt í einu.

Litli Jón og Gunna sitja hjá og skilja ekkert í því að eiga ekki

slíkan pening, bæði í tveimur vinnum og dugar varla fyrir húsaleigu

og mat. Innflutningur á hælisleitendum greinilega borgar sig.

Sigurður Kristján Hjaltested, 29.5.2025 kl. 15:14

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Árið 2019 voru sett lög sem var ætlað að bregðast við athugasemdum alþjóðlegs vinnuhóps um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (FATF) gagngert til að sporna við því að "almannaheillafélög" sem starfa yfir landamæri væru notuð í slíkum tilgangi eins og þekkt eru dæmi um.

119/2019: Lög um skráningarskyldu félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri | Lög | Alþingi

Samkvæmt 1. gr. þeirra laga er skylt er að skrá félag til almannaheilla sem stofnað er til eða starfrækt í þeim tilgangi að safna eða útdeila fjármunum í almannaþágu og er með starfsemi yfir landamæri, í almannaheillafélagaskrá sem ríkisskattstjóri starfrækir.

Hér má sjá upplýsingar úr fyrirtækjaskrá um samtökin Solaris:

SOLARIS-hjálparsamtök f. hælisl (6002170380) | Leit | Skatturinn

Eins og þar sést eru samtökin ekki skráð sem almannaheillafélag með starfsemi yfir landamæri heldur hversdagsleg félagasamtök. Sjá undir "rekstrarform" en þar ætti að standa "almannaheillafélag" ef viðkomandi félag væri skráð sem slíkt en svo er ekki í þessu tilviki. Þar með er fyrrnefnd lagaskylda um skráningu í almannaheillafélagaskrá ekki uppfyllt. Ársreikningar hafa ekki heldur verið birtir á heimasíðu samtakanna eins og er skylt samkvæmt lögunum.

Til glöggvunar má nefna að þessi skráningarskylda er sambærileg við skyldu stjórnmálaflokka til að skrá sig á stjórnmálasamtakaskrá samkvæmt lögum frá 2021, sem hefur verið mikið í umræðu nýlega eftir að í ljós kom að ýmsir flokkar voru misjafnlega seinir til að uppfylla þá skyldu.

Engin sambærileg umræða hefur verið opinberlega um vanrækslu félaga til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri á skráningarskyldu, sem var komið á til að sporna við peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Guðmundur Ásgeirsson, 29.5.2025 kl. 16:11

4 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

og pabbi Semu keyptir líka fyrir 20 millur, visir sagði frá.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 29.5.2025 kl. 18:27

5 Smámynd: Grímur Kjartansson

Bílaumboð hafa verið að kvarta yfir viðskiptavinir þeirra þurfi að gera grein fyrir  hvaðan hver króna kemur þegar keyptur er bíll.

Undarlegt ef lögin um peningaþvætii ná ekki líka til hlutabréfakaupa

Grímur Kjartansson, 29.5.2025 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband