Hamas í stað hamfarahlýnunar

Hamfarahlýnun er ekki lengur í tísku hjá góða fólkinu. Ekki voru mótmæli gegn heimshlýnun er árleg söngvakeppni Evrópu var haldin. Ekki koma stjórnmálamenn sér saman um að lýsa yfir neyðarástandi vegna heimshlýnunar. Nei, núna eru hryðjuverkasamtökin Hamas mál málanna hjá góða fólkinu.

Ísraelar fremja þjóðarmorð í Gasa er viðkvæðið. Þegar Ísrael lét Gasa í hendur araba, árið 2005, voru íbúarnir ein milljón. Tuttugu árum síðar eru þeir tvær milljónir. Fá ef nokkur dæmi eru um jafn öra fólksfjölgun, tvöföldun á 20 árum. Góða fólkið kallar það þjóðarmorð. Stefnið er gamalkunnugt, hvít er gert svart.

Yfirstandandi stríð Ísrael við Hamas, sem fer með yfirráðin á Gasa, hófst með fjöldamorðum Hamas í Ísrael þann 7. október fyrir tveim árum. Bresk þingnefnd fór í saumana á atburðinum og skilaði ítarlegri skýrslu. Stutta útgáfan er að Hamas eru blóðþyrstir villimenn. Ísrael einsetti sér að uppræta samtökin.

Góða fólkið fagnar og fegrar villimennsku eftir að það fékk ekki framgang fyrir loftslagshamfarir af mannavöldum. Gréta Thunbeg, sem í fyrradag boðaði heimsendi vegna hamfarahlýnunar, segir núna að heimur án Hamas sé óbærilegur. Vinstrimenn hér á landi taka undir með ríkisstjórnina í broddi fylkingar. Heimsendaóttinn var rekinn áfram af heimsku sem ýmist er eðlislæg eða valkvæð. Hamasaðdáunin er af sama stofni.

Lítið dæmi um valkvæða heimsku góða fólksins. Dagbjört Hákonardóttir þingmaður Samfylkingar skrifar í miðopnu Morgunblaðsins í gær að hún sé gyðingavinur eftir að hafa séð Schindlers list ellefu ára. En segir síðan

Það er einmitt þess vegna sem mér finnst hafið yfir allan vafa að fordæma framgöngu Ísraela sem hernámsaðila í Palestínu, sem nú tala fyrir þjóðflutningum og nota hungursneyð sem og óhjákvæmilega útbreiðslu smitsjúkdóma sem vopn í hernaðarátökum, samhliða stóraukningu á landhernaði á síðustu dögum. 

Dagbjört nefnir ekki fjöldamorðin 7. október 2003. Þau gerðust ekki í hennar huga. Dagbjört þykist syrgja helförina 80 árum en hún strokar út fjöldamorðin fyrir tveim árum. Þingmaðurinn veit betur en kýs valkvæða heimsku.

Dagbjört bullar um hernám Ísraela í Palestínu. Ísrael lét Gasa í hendur araba fyrir 20 árum. Engu hernámi Ísrael er til að dreifa á Gasa. Fyrir fjöldamorðin réð Hamas lögum og lofum í Gasa, þar var ekkert ísraelskt yfirvald. Sjálft nafnið Palestína, er ekki arabískt að uppruna, heldur heiti sem Rómverjar gáfu landi gyðinga, Júdeu. Nafnið notaði rómverska heimsveldið til að afmá tilkall gyðinga til heimalandsins. Filistear, sem Palestína er nefnd eftir, sátu yfir hlut gyðinga á dögum Simsonar og Delíu. Samkvæmt arfsögninni tortímdi blindaður Simson yfirstétt Filistea einmitt í Gasa. Filistear eru týnd þjóð, voru ekki arabar. Þeir komu seinna til sögunnar og heimta nú í sinn hlut alla Júdeu.

Deilur Ísraela og araba snúast ekki um land. Ef svo væri hefði fyrir löngu verði búið að skipta landinu. Deilan snýst um að meginþorri araba hafnar tilvist Ísraelsríkis. Góða fólkið í vestrinu tekur undir með Hamas og vill tortíma Ísrael. Það er þjóðarmorðið sem að er stefnt. 


mbl.is Skorar á Netanjahú að opna aftur á mannúðaraðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Þeir sem halda uppi Slagorðinu, Frjáls Palestína, eru í raun að segja: Við viljum að þjóðarmorð fari fram á Gyðingum, að Ísrael verði eytt.

Ísraelsmenn eiga engrar annarra kostar völ en að ganga milli bols og höfuðs á Hamas.

Guðmundur Örn Ragnarsson, 21.5.2025 kl. 11:05

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Múslimar trúa á Allah en gyðingar og kristnir á Jahve. Er þetta sami guðinn eða tveir ólíkir guðir? Ef þetta er sami guðinn þá er hann að slátra sínu eigin fólki. Það væri hentugast fyrir þá að taka upp aðra trú, af heiðnum guðum er til nóg.

Það er skrýtið að kennari skuli festa sig í þessa kreddutrú. Að vísu er skýringin á Palestínu rétt og dregið af Filistear. En þetta eru deilur um hugtök.

Talið er að Heródótus hafi fyrstur notað orðið Palaistine um Föníkumenn sem aðskildu sig frá öðrum í hluta Sýrlands, um 400 fyrir Krist (Histories, 430 fyrir Krist eftir Heródótus). Wikipedia segir frá. Við hana er ekki deilt, þótt það megi, og oft ef trúin er viðurkenndri sögu sterkari. Hvort sem þeir eru kallaðir arabar eða Palestínumenn, það eru deilur um hugtakanotkun.

Síðan er annað ekki síður merkilegt fyrir þá sem ræða um þessa deilu, sem ég hef frættðzt um í Youtubemyndböndum.

Það er að Gyðingar eru í grunninn Föníkumenn eins og orðið er á íslenzku, eða Kananítar sem er upprunalegra heiti samkvæmt máli þessara fornu þjóða.

Þó eru Kananítar, Kanverjar er kannski algengara orð,  óvinir Gyðinga samkvæmt Biblíunni, þeir skilja sig frá þeim. Í 12. kafla fyrstu Mósebókar segir drottinn: "Niðjum þínum vil ég gefa þetta land." "En þá voru Kanverjar fyrir í landinu..." 

Hér er þetta viðurkennt í Biblíunni að Gyðingar koma í land sem Palestínumenn áttu fyrir, því Kanverji er nær því að vera Palestínumaður, sá sem ekki trúir á Jahve en var fyrir í landinu, og er af svipuðu ætterni.

Baal var vinsæll guð meðal Kanverja.

Gyðingar sem nú búa í mörgum löndum í friði en voru ofsóttir fyrr á öldum eru af blönduðum kynþætti eins og sést á útliti þeirra, Bob Dylan er bláeygur til dæmis. Þeir eru margir hálfnorrænir og hálfgermanskir, en Palestínumenn af upprunalegra ætterni.

Ísrael er ekki eina landið sem Gyðingar búa í. Þeir eru fjölmennir í Bandaríkjunum, og miklu víðar. Þeir hafa enn bæði mjög sterk ítök í menningu, listum og fjármálakerfi Vesturlanda alveg eins og fyrir 100 árum þegar andstaðan gegn þeim var mikil.

Vandamál með fjölgun Gazabúa er svipað "vandamáli" Vesturlandabúa að islamstrúarmenn fjölga sér en innfæddir ekki, heldur fækkar þeim vegna innbyrðis úrkynjunar femínismans.

Því mætti með rökum segja að Norðurlandabúar ættu að taka upp islamstrú til að lifa af. Ekki síður ættum við að taka upp fjölkvæni, eignast kvennabúr og slíkt.

Islam virðist eina aflið sem femínistar leggja ekki í að ráðast gegn. Það þarf að notfæra sér, ég er að vísu ekki orðinn islamisti ennþá, en ég dáist að þeim að mörgu leyti. Mér finnst mín heiðna og hálfkristna trú betri, en sé fram á það að Íslendingar verði islamstrúar eins og aðrir í Evrópu ef spár ganga eftir um fjölgun þeirra og fækkun hinna.

Ingólfur Sigurðsson, 21.5.2025 kl. 14:41

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Því miður er heimska góða fólksins og vinstrimanna ekki

valkvæð, heldur eðlislæg.

Það eru ekki öllum gefnar gáfurnar en því miður

gleymdist það hjá þessum hópi.

Sigurður Kristján Hjaltested, 21.5.2025 kl. 15:28

4 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Vinsamleg leiðrétting: Samson hét hann en ekki Simson. 

Wilhelm Emilsson, 21.5.2025 kl. 15:49

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ingólfur minn!Þú ert svo fróðleiksfús og hefur greinilega náð Í marga vitneskju um guði sem ég ekki þekki t.d. þú kallar þá vinsÆla eins og Baal er víst í Kína. Ég las aldrei Biblíuna en Biblíusögur var mitt hjartagull.Svo er frÆðarinn Snorri hreint afbragðs fyrirlesari á stöðinni Omega. En maður er ekki alltaf í leit þegar maður fær sannanir hvern einasta dag. Ég veit ekki hvar við værum hefðum við ekki þess hér að:k  komnir gestir fyrirgef. 

Helga Kristjánsdóttir, 21.5.2025 kl. 17:41

6 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Hér er ávarp Eyal Zamir, yfirmanns herráðs Ísraelshers, IDF, frá því í gær:

Ég vil ávarpa íbúa Gaza, byrjaði hann. Það er ekki Ísraelsher sem hefur komið þessari tortímingu yfir ykkur. Við byrjuðum ekki þetta stríð. Það eru ekki við sem höfum svipt ykkur mat, húsaskjóli og peningum.

Við felum okkur ekki á sjúkrahúsum eða skólum. Við búum ekki á lúxushótelum á meðan þið almenningur búið við hörmungar. Það gerir forysta ykkar, þeir sömu og halda okkar fólki í gíslingu.

Hamas ber ábyrgð á því að hefja stríðið. Sömuleiðis ábyrgð á þeirri óumræðanlegu þjáningu sem almennir borgara á Gaza búa við. Hamas hefur valdið allri tortímingunni og það verða ekki þeir sem munu byggja upp aftur. 

 Eyal Zamir á vígvellinum

Zamir lagði áherslu á: Hamas hefur aðeins einn valkost, að láta lausa gíslana.

Ef samningur næst, mun IDF haga aðgerðum sínum í samræmi við það. 

IDF starfar undantekningalaust í samræmi við siðareglur IDF, ísraelsk lög, og alþjóðlega lög, en er jafnframt ósveigjanlegur og skuldbundinn að tryggja öryggi Ísraelsríkis og borgara þess.

Hver einasta yfirlýsing sem dregur í efa heiðarleika aðgerða okkar eða siðferði hermanna okkar er fölsk.

Guðmundur Örn Ragnarsson, 21.5.2025 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband