Miðvikudagur, 23. apríl 2025
Yfir 20 m.kr. lögfræðikostnaður Sigríðar Daggar
Afkoma Blaðamannafélags Íslands, BÍ. versnaði um rúmlega 50 milljónir króna á milli ára. Stórfelld útgjöld vegna lögfræðiþjónustu vega þungt í rekstri BÍ. Sigríður Dögg formaður BÍ getur illa staðið í stafni stéttafélagsins og kaupir sér skálkaskjól lögmanna sem koma fram fyrir hönd félagsins.
Tvö mál eru Sigríði Dögg formanni sérlega þung í skauti. Í fyrsta lagi hennar eigin skattamál. Hún stakk undan skatti tugum milljónum króna þegar hún stundaði umsvifamikla AirBnB-útleigu. Upp komst um skattsvikin síðsumars 2023 en formaður BÍ neitaði að tjá sig við fjölmiðla um málavöxtu. Sigríður Dögg, þá fréttamaður RÚV og formaður BÍ, missti starfið hjá RÚV vegna skattamálsins. Til að tryggja sér laun rak Sigríður Dögg Hjálmar Jónsson framkvæmdastjóra BÍ og settist sjálf i stól hans. Hjálmar greindi frá sinni afstöðu til formennsku skattsvikara í stéttafélagi blaðamanna:
Það liggur fyrir í samtölum mínum við núverandi formann að hann er sekur um að skjóta tekjum undan skatti í þrjú ár. Það hefði ekki komist upp nema vegna þess að skattyfirvöld kölluðu eftir upplýsingum frá Airbnb og fengu um síðir. Að telja ekki fram tekjur til skatts í eitt ár getur verið mistök, í tvö ár kannski heimska, en í þrjú ár samfleytt hlýtur að teljast einbeittur brotavilji.
Lögfræðilegur herkostnaður við að reka Hjálmar er ekki undir 14 milljónir króna.
Seinna málið sem skrúfar upp lögfræðikostnað BÍ er byrlunar- og símamálið. Sigríður Dögg varð formaður BÍ vorið 2021, en þá var Páli skipstjóra Steingrímssyni byrlað, síma hans stolið og afritaður á vinnustað Sigríðar Daggar - RÚV. Þeir sem tryggðu sigur Sigríðar Daggar í formannsslagnum vorið 2021 komu úr RSK-miðlum, RÚV, Stundinni og Kjarnanum. Fréttamenn á þessum þrem fjölmiðlum eru grunaðir um aðkomu að glæpnum gegn skipstjóranum.
Á formannstíð sinni hefur Sigríður Dögg ráðstafað ótöldum milljónum króna Blaðamannafélags Íslands í þágu sakborninga í byrlunar- og símamálinu. Til dæmis mætti lögmaður, á tímakaupi hjá BÍ, í pallborðsþátt á Vísi með tveim sakborningum. Sami lögmaðurinn mætti fyrir hönd Sigríðar Daggar í Spursmálsþátt Moggans. Lögmaðurinn sem um ræðir, Flóki Ásgeirsson, fylgdi einum sakborninganna í byrlunar- og símamálinu, Aðalsteini Kjartanssyni, í lögregluyfirheyrslu haustið 2022. Aðalsteinn var þá varaformaður BÍ, hægri hönd Sigríðar Daggar. Þau voru samstarfsmenn á RÚV vorið 2021, þegar Sigríður Dögg varð formaður og Aðalsteinn komst í illa fengin símagögn.
Skattamál Sigríðar Daggar annars vegar og hins vegar byrlunar- og símamálið ríða fjárhag Blaðamannafélags Íslands á slig. Hvað faglegan trúverðugleika blaðamanna áhrærir má vitna í fyrrnefnda grein Hjálmars Jónssonar sem var rekinn fyrir að standa í ístaðinu:
Þetta er ekki mitt mál og ömurlegt að þurfa að koma að svona lágkúru. Orðstír Blaðamannafélagsins er hins vegar mitt mál og þau gildi sem Blaðamannafélagið stendur fyrir. Ég hef notið trúnaðar blaðamanna og félagsmanna í BÍ til að starfa fyrir þá í tæpa fjóra áratugi og það er ekki í myndinni að bregðast þeim trúnaði. Formaður Blaðamannafélags Íslands þarf að hafa hreinan skjöld; svo einfalt er það. Það sorglega er að núverandi formaður hefur tekið eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni félagsins. Það er til skammar fyrir núverandi formann og þá sem hafa lagt hönd á plóg.
Blaðamenn láta yfir sig ganga að formaður þeirra er skattsvikari og verðlaunuðustu félagsmenn BÍ eru grunaðir um alvarlegan glæp. Er einhver ástæða að taka mark á blaðamönnum sem hreyfa hvorki legg né lið til að upplýsa spillingu og lögbrot sem framin eru í nafni stéttarinnar? Vel að merkja: eini fjölmiðlablaðamaðurinn sem gert hefur byrlunar- og símamálinu skil, Stefán Einar á Morgunblaðinu, er ekki félagsmaður Blaðamannafélags Íslands.
![]() |
Tugmilljóna tap blaðamanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég var nú forvitinn að sjá hvað kröfur þarf að uppfylla til að fá að vera félagsmaður í BÍ
Það eru öll þau sem hafa blaðamennsku eða upplýsingamiðlun að aðalstarfi.
Grímur Kjartansson, 23.4.2025 kl. 08:18
Voru það ekki hinir nýju valdhafar BÍ sem tóku atkvæðaréttinn af gömlu félagsmönnunum svo þeir gætu athafnað sig að vild með sjóði félagsins. Tugmilljóna tap sýnir árangurinn.
Ragnhildur Kolka, 23.4.2025 kl. 09:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.