Miđvikudagur, 19. mars 2025
Lögreglan: gyđingahatur í lagi, en ekki gagnrýni á trans í leikskólum
Í viđtengdri frétt kemur fram ađ mađur hér á landi, Ibaa Ben Hosheyeh, hafi birt
mynd af Facebook-síđu sinni ţar sem hvatt er til drápa á gyđingum hvar sem til ţeirra nćđist og lík ţeirra svívirt. Sagđi hann ţá afkvćmi svína og apa ásamt ţví ađ ausa yfir ţá svívirđingum af ýmsum toga.
Lögreglunni í Reykjavík datt ekki í hug ađ rannsaka til ákćru Ibaa Ben Hosheyeh fyrir brot á gr. 233 a almennra hegningarlaga sem hljóđar svo:
Hver sem opinberlega hćđist ađ, rógber, smánar eđa ógnar manni eđa hópi manna međ ummćlum eđa annars konar tjáningu, svo sem međ myndum eđa táknum, vegna ţjóđernisuppruna eđa ţjóđlegs uppruna, litarháttar, kynţáttar, trúarbragđa, fötlunar, kyneinkenna, kynhneigđar eđa kynvitundar, eđa breiđir slíkt út, skal sćta sektum eđa fangelsi allt ađ 2 árum.
Tilfallandi ţekkir vel til hvernig lögreglustjórinn í Reykjavík beitir umrćddri lagagrein. Hann gagnrýndi transinnrćtingu í leik- og grunnskólum og fékk óđara á sig ákćru frá lögreglustjóra höfuđborgarinnar.
Gyđingahatur fyrir opnum tjöldum, manndrápshótanir og afmennskun, eru frjáls tjáning samkvćmt lögreglunni í Reykjavík. En vei ţeim er andmćla transhugmyndafrćđinni, ţeir skulu sćta ákćru.
Tilfallandi veltir fyrir sér ađ skipta um nafn, skrá sig sem Múhameđ Vilhjálmsson í ţjóđskrá. Ţannig er tryggđ friđhelgi gagnvart valkvćđu ákćruvaldi lögreglunnar í Reykjavík.
![]() |
Lögreglustjóri gerđur afturreka í ţrígang |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Athugasemdir
Blessađur Páll.
Napur er sannleikurinn í ţessum pistli ţínum.
Ţó í hćđni sé sagt ţá ţćtti mér ţađ samt miđur ef svipuhögg Rétttrúnađarins fengju breytt Páli í Múhameđ.
Pálína gćti sloppiđ og ţar međ yrđir ţú ekki síđur heilög kýr en Múhameđ, Páll er hins vegar ágćtt nafn.
Og ţađ ţekkja margir ţennan Pál, ţađ hafa eyru mín numiđ á almannafćri, almenningur kann ađ meta ţá sem ljá honum rödd.
En ţegar raddir eru ofsóttar á tímum valkvćđs ákćruvalds Rétttrúnađarins, ţá skilur mađur vel ađ menn hugsi sinn gang. Ţađ er auđveldara ađ biđja menn um píslarvćtti en ađ upplifa ţađ sjálfur.
Gangi ţér vel Páll.
Kveđja ađ austan.
Ómar Geirsson, 19.3.2025 kl. 09:09
Er íslenska lögreglan ađ falla í sama far og lögreglan í Rotherham? Ţar hafa hopnaudganir á börnum átt sér stađ án nokkurra viđbragđa frá lögreglu af ótta hennar viđ ásökunum um kynţáttahatur. Kannski er ţađ líka ástćđan fyrir ađgerđaleysinu í ofbeldismálunum í Breiđholtsskóla. Viđbragđiđ virđist ţađ sama og í Rotherham.
Biddu međ ađ skrá nafnabreytingu á Páll, viđ ţurfum ekki fleiri ofbeldismenn hér á landi.
Ragnhildur Kolka, 19.3.2025 kl. 09:17
Ţađ hefur löngum veriđ á Íslandi munur á međhöndlun á Jóni og séra Jóni
Gćtir ţú ekki bara frekar fariđ ađ kalla ţig séra Páll
Grímur Kjartansson, 19.3.2025 kl. 10:51
233 grein almennra hegningarlaga er sem slík mannréttindabrot, og ţví verđum viđ ađ ţakka Iba Ben fyrir ađ búa til fordćmi fyrir ţví ađ hún sé hunsuđ.
Ásgrímur Hartmannsson, 19.3.2025 kl. 16:35
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.