Trump gefur Pútín Evrópu

Eftir 90 mínútna samtal við Pútín Rússlandsforseta hringdi Trump í Selenskí forseta Úkraínu í fáeinar mínútur. Á milli Trump og Pútín var samtal, Selenskí fékk niðurstöðu. Heimurinn er í höndum Trump og Pútín, skrifar Telegraph. Smávegis ýkjur, vitanlega, líkt og fyrirsögnin hér að ofan, en keyrir heim tvö kjarnaatriði.

Í fyrsta lagi að Trump og Pútín eru sammála að forsetar Bandaríkjanna og Rússlands geta einir leitt til lykta Úkraínustríðið, aðrir eru í aukahlutverkum. Heimsfjölmiðlarnir taka undir sjónarmiðið og þar með verður sannfæring tveggja forseta viðurkennd staðreynd alþjóðastjórnmála.

Í öðru lagi gefur Trump Pútín frjálsar hendur í Evrópu. Ekki til að leggja undir sig álfuna, eins og sumir halda að hann vilji, heldur til að tryggja lögmæta rússneska öryggishagsmuni. Í því felst að hvorki verður Úkraína Nató-ríki né verða bandarískir hermenn sendir til að gæta víglínunnar í fyrirséðu vopnahléi, á meðan friðarsamningar standa yfir. Úkraína fær ekki bandaríska hervernd í einu eða öðru formi. Trump breytir ráðandi stefnu Bandaríkjanna frá lokum seinna stríðs. ESB-Evrópa er ekki lengur kjarnasvæði hvað bandaríska öryggishagsmuni áhrærir. Grænland og Ísland eru það á hinn bóginn og kannski má telja Bretland þar með, en bara kannski.

Úkraína er fyrsta fórnarlamb breyttrar varnarmálastefnu Bandaríkjanna. Ráðandi öfl í Úkraínu gerðu landið að verkfæri til að Bandaríkin og ESB-Evrópa gætu fært út áhrifasvæði sitt í austur, líkt og gert var með stækkun Nató eftir fall járntjaldsins fyrir rúmum 30 árum. En nú hafa Bandaríkin ekki lengur áhuga. ESB-Evrópa hefur ekki bolmagn til að halda útrásinni í Úkraínu gangandi og verður að láta í minni pokann. Undanhaldin lýkur ekki við vesturlandamæri Úkraínu, áhrif Rússa munu vaxa í Austur-Evrópu almennt.

Í fyrirsjáanlegri framtíð, sennilega næstu áratugi, verður höfuðverkefni ESB-Evrópu að semja við Rússa um sameiginlega tilvist á meginlandi Evrópu. ESB-Evrópa og Rússland eru ólíkar útgáfur evrópskrar siðmenningar. Sú fyrri er frjálslynd og alþjóðleg en sú seinni íhaldssöm og þjóðleg. Sjálf Bandaríkin voru til skamms tíma frjálslynd og alþjóðleg. Svo kom Trump.

Ógjörningur er að segja til um hvernig fer með samskipti ESB-Evrópu og Rússland næstu ár og áratugi. Hinu er hægt að slá föstu að Ísland á ekkert sameiginlegt með afdrifum ESB-Evrópu gagnvart Rússlandi. Nema, vel að merkja, við sitjum uppi með ríkisstjórn hér á landi sem stefnir Íslandi inn í ESB. Valkyrjur í heiðni völdu hverjir skyldu vopndauðir á vígvellinum. Kristrún, Inga og Þorgerður Katrín velja að fullveldi Íslands skuli vopndautt í Brussel. Áríðandi er að koma í veg fyrir þá fyrirætlan.  

 

Friði er ekki náð í Úkraínu. Símtal Pútín og Trump gefur vonir um að styttist í að bræðraþjóðirnar láti af vopnaskaki sem kostað hefur að minnsta kosti milljón manns lífið, tvær milljónir eru örkumla og enn fleiri milljónir hafa flúið heimkynni sín.

Úkraínustríðið á rætur í hugmyndafræði sem ofmat vestrænan styrk og vanmat rússneska seiglu. Gráglettni örlaganna er að hugmyndafræðin hrynur til grunna þegar tveir forsetar koma sér saman um að hún sé röng. 


mbl.is Trump hringdi í Pútín: Hefja viðræður án tafar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þrjár vikur og Trump hefur haldið demókrötum á harðahlaupum, en alltaf 5 skrefum á eftir með viðbrögðin. Nú er röðin komin að Evrópu. Evrópa er í losti. Fordekruð og án Kanans s hún ekki møguleika að fara í stríð við Rússa. Búin að spandera vopnum sínu í vonlaust stríð. Í dag er vopnafrramleidsla Rússa meiri en öll vopnafrramleidsla Evrópuríkja ná. Hubris kölluðu. Grikkir hugmyndafræði ESB. 

En eins og þú segir Páll, þá á Íslandi valkost í stöðunni. Viðtalið á RUV, við utanríkisráðherrann okkar, bendir þó til að við munum fara niður með sökkvandi ESB-skútunni. 

Ragnhildur Kolka, 14.2.2025 kl. 12:18

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband