Föstudagur, 27. desember 2024
Loftslagsráđherra vill banna bensínbíla áriđ 2025
Jóhann Páll Jóhannsson er loftslagsráđherra í nýrri ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Jóhann Páll bođar ađ á Íslandi verđi bannađ ađ nýskrá bensínbíla eftir áramót. ,,Ţetta eru ţćr alvöru ađgerđir í loftslagsmálum sem Samfylkingin hefur kallađ eftir. Viđ notum orđiđ alvöru af ţví viđ höfnum sýndarmennsku og upplýsingaóreiđu [gömlu] ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum," skrifar Jóhann Páll.
Svo ekkert fari á milli mála er sannfćring loftslagsráđherra skráđ og skjalfest međ eftirfarandi orđum:
Í loftslagskaflanum bođum viđ [Samfylkingin] m.a. uppstokkun í landbúnađarkerfinu, hrađari orkuskipti međ fjölgun rafhleđslustöđva og banni viđ nýskráningu bensínbíla frá og međ árinu 2025, byltingu í almenningssamgöngum međ flýtingu Borgarlínu (feitletr. pv)
Báđar tilvitnanir eru úr grein Jóhanns Páls fyrir ţrem árum ţar sem hann útlistar loftslagsađgerđir Samfylkingar, komist flokkurinn til valda. Nú er flokkurinn kominn í stjórnarráđiđ, stýrir bćđi forsćtisráđuneytinu og loftslagsráđuneytinu. Á milli jóla og nýárs hlýtur Jóhann Páll međ stuđningi Kristrúnar forsćtis ađ setja reglugerđ sem bannar nýskráningu bensínbíla eftir fimm daga.
Annars eru hvorki Jóhann Páll né Samfylking ,,alvöru," samkvćmt eigin skilgreiningu, heldur haldin ,,sýndarmennsku og upplýsingaóreiđu."
Athugasemdir
Ţetta er nú svo sem enn á heimasíđu Samfylkingarinnar
"Samfylkingin vill stóraukinn stuđning viđ uppbyggingu rafhleđslu-, metan- og vetnisstöđva um allt land svo raunhćft verđi ađ hćtta nýskráningu bensín- og dísilfólksbíla frá og međ árinu 2025."
og almenningur borgar "Sanngjörn gjaldtaka á losun kolefnis "
Grímur Kjartansson, 27.12.2024 kl. 14:21
Ţegar fáviti er viđ stjorn,ţá er útkoman eftir ţví
Haraldur G Borgfjörđ, 27.12.2024 kl. 16:52
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.