Mánudagur, 2. desember 2024
Ákall Samfylkingar 1,4% stærra en íhald Sjálfstæðisflokks
Kristrún formaður segir fylgisaukningu Samfylkingar ákall um breytingar. Flokkurinn fékk 20,8% atkvæða. Kjósendur verðlaunuðu Sjálfstæðisflokkinn með litlu minna fylgi, 19,4%. Sjálfstæðisflokkurinn er með 11 ára samfellda sögu í ríkisstjórn, frá árinu 2013.
Krafa um breytingar sem er 1,4 prósent stærra en ósk um óbreytt ástand, íhald, er ósannfærandi, svo ekki sé dýpra í árinni tekið.
Kristrún sagðist vera með ,,plan". Aðeins einn af hverjum fimm kjósendum kusu krataplanið - hvað sem það nú annars er. 80 prósent kjósenda sögðu nei, takk, við höfum ekki áhuga.
Verkefni Kristrúnar og Samfylkingar er ekki að breyta Íslandi. Niðurstaða kosninganna í fyrradag er krafa um óbreytt ástand. Öfgaflokkar, þ.e. Píratar, Sósíalistar og Vinstri grænir fengu háðulega útreið. Engan þingmann kjörinn.
Kjósendur, í visku sinni, létu sér ekki nægja að slátra öfgaflokkum heldur gættu þeir þess að dreifa atkvæðum sínum á þá flokka sem hlutu náð fyrir augum þeirra í anda meðalhófsins. Tveir flokkar eru stærstir, án þess að vera stórir, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur. Þar á eftir koma þrír millistórir flokkar með 12-16 prósent fylgi; Viðreisn, Flokkur fólksins og Miðflokkurinn. Lestina rekur elsti stjórnmálaflokkur landsins, sem íhaldssamir kjósendur leyfðu að hökta með til að slíta ekki sögulega samfellu. Framsókn fékk 7,8%.
Skilaboð kjósenda er að þeim hugnist best hófstillt miðhægristjórn.
Verkefni Kristrúnar formanns er að draga réttar ályktanir af vilja kjósenda annars vegar og hins vegar að leggja sitt af mörkum til ábyrgs meirihluta á alþingi, sem líklegur er til að halda út kjörtímabilið.
Kristrún innbyrðir ekki kosningasigurinn fyrr en hún myndar trausta meirihlutastjórn. Áherslan er á traust. Samstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er dautt mál. Eldhúsflokkur Ingu Sæland er uppreisnarlið, ótækt í ríkisstjórn. Besti kosturinn er stjórn Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Sé Miðflokkurinn ekki nógu hugþekkur krötum er Framsókn næst besti kosturinn. Þriðji raunhæfi kostur Kristrúnar er samstjórn Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar. En sjálfstæðismenn græfu eigin gröf í þeirri ríkisstjórn.
Kristrún hefur ekki langan tíma, nokkra daga. Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Miðflokkur gætu myndað meirihlutastjórn. Þorgerður Katrín yrði drottningin en Kristrún glimmerdaman sem enginn bauð upp á ballinu.
Kristrún fyrst á fund forseta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
ÉG óttast þegar Inga krefst samstarfsflokka um 450 þús. lágmarksframfærslu renni tvær grímur á menn. Margir háskólamenntaði hafa nú þegar þessar 450 þúsund en munu ekki sætta sig við að aldraðir og öryrkjar verði hækkaði upp í sömu laun og þeir. Til að hafa 450-500 þarftu að þéna 600-700 þúsund. Til að borga allt þetta þyrfti niður skurð hjá ríkinu, færa peninga á milli verkefna eða gífurlega skattahækkun. Forvitnilegir tímar framundan.
Helga Dögg Sverrisdóttir, 2.12.2024 kl. 08:43
Hrædd ef ég um að seint muni ganga að koma Sjálfstæðisflokki og Viðreisn saman í stjórn. Þorgerður Katrín getur ekki leynt andúð sinni á Bjarna (líklega hefur hann ekki látið hana vaða yfir sig). Þetta er persónulegt hjá henni og kæmi í veg fyrir alla samvinnu.
Ragnhildur Kolka, 2.12.2024 kl. 18:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning