Mánudagur, 7. október 2024
Svandís boðar samkeppni um atvinnu, húsnæði og velferð
Nýkjörinn formaður Vinstri grænna, Svandís Svavarsdóttir, boðar aukinn straum hælisleitenda til Íslands. Þar með eykst samkeppnin um takmörkuð gæði, eins og atvinnu, húsnæði og velferð. Auðvaldið kætist enda hælisinnflutningur Svandísar ávísun á ofsagróða af ónýtum eignum, samanber JL-húsið í Reykjavík.
Tveir hópar hælisleitenda koma til Íslands. Í einn stað fólk sem vill setjast hér að og koma undir sig fótunum. Sá hópur keppir við þá landsmenn sem fyrir eru um atvinnu og húsnæði. Hinn hópur hælisleitenda sækir í ókeypis uppihald, fæði, húsnæði og dagpeninga. Þessi hópur er í harðri samkeppni við aðra sem eru á félagslegri framfærslu.
Aukið innstreymi hælisleitenda eykur samkeppina á milli þeirra hópa sem minnst eiga og höllustum fæti standa í samfélaginu.
Loforð Svandísar um Ísland sem paradís hælisleitenda bitnar á þeim sem nýkjörinn formaður Vinstri grænna þykist í orði kveðnu styðja til betra lífs.
Formannsræða Svandísar er hunang fyrir Flokk fólksins, Samfylkinguna og Viðreisn sem fiska á sömu kjósendamiðum og Vinstri grænir. Talmönnum þessara flokka dettur ekki í hug að bjóða kjósendum upp á aukið innstreymi hælisleitenda. Samkeppni um takmörkuð gæði þeirra efnaminnstu er vinstri grænn félagsdarwinismi; þeir ósvífnustu og ólöghlýðnustu lifa af.
Snillingur hún Svandís, gerir smáflokk að örflokki í sinni fyrstu formannsræðu.
Svandís: Skuli stefnt að kosningum í vor | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sjálfstæðisflokkurinn ætti að sjá tækifæri þarna.
Skoðum:
Forsendur: 1: VG eru búnir að vera, þeir hanga bara inni fyirir mánaðarlaunin eins lengi og þeir geta. Þeirra ljósendur eru allir á leið til Pírata. Það er alveg nóg úrval á vinstri vængnum.
Kosningar eru auka-atriði, allt spurning um mánaðarlaun, og að hanga á völdum eins lengi og hægt er.
2: Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi með tímanum. Fyrst til Miðflokks, sem getur tekið suma, og nú til Arnars, sem getur tekið við restinni. Bara spurinig um tíma hvenær flikkurinn fer undir 10%. Sennilega fyrir vorið. Þeirra hagur eru kosningar sem fyrst, til þess að halda sínu.
Semsagt: VG græðir á slímusetu, XD græðir á kosningum sem fyrst.
En...
Þess vegna ættu þeir hjá XD að taka sig til og láta VG dansa smá. Hóta þeim stjórnarslitum nema þeir geri þetta og hitt.
Og þeir hjá VG munu gera hvað sem beðið er um, vegna þess að þeir vilja vera allan tímann. Jafnvel lengur.
Augljóst tækifæri.
Ásgrímur Hartmannsson, 7.10.2024 kl. 15:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.