Laugardagur, 5. október 2024
Ađalsteinn og Arnar Ţór stađfesta samráđ í byrlunar- og símamáli
Tveir sakborningar í byrlunar- og símastuldarmálinu, Ađalsteinn Kjartansson og Arnar Ţór Ingólfsson, skrifa leiđara um máliđ í Heimildina. Ber vel í veiđi ađ tvímenningarnir skrifi. Ađalsteinn er skráđur höfundur fréttar Stundarinnar 21. maí 2021 um ,,Skćruliđadeild Samherja." Arnar Ţór ásamt Ţórđi Snć Júlíussyni er merktur höfundur sömu fréttar í Kjarnanum, sem birtist samtímis Stundar-fréttinni eđa morguninn 21. maí fyrir ţremur árum.
Voriđ 2021 voru Stundin og Kjarninn sjálfstćđir miđlar og ótengdir. Eftir ađ byrlunar-og símastuldarmáliđ fór í lögreglurannsókn, og varđ báđum útgáfum ţungur ljár í ţúfu, sameinuđust Stundin og Kjarninn undir merkjum Heimildar.
Í leiđaranum, sem birtist í gćr, ţegja Ađalsteinn og Arnar Ţór ţá stađreynd ađ sama fréttin um ,,Skćruliđadeild Samherja" birtist samtímis í báđum útgáfum, Stundinni og Kjarnanum. Engir ađrir fjölmiđlar birtu fréttina ţennan morgun. Ţegar tilfallandi byrjađi ađ kynna sér byrlunar- og símastuldarmáliđ, haustiđ 2021, var ţađ samtímabirting sömu fréttar annars vegar og hins vegar skyndileg breyting á starfsstöđ Ađalsteins, sjá 1. hér ađ neđan, sem kom honum á sporiđ.
Tveir fjölmiđlar međ sömu fréttina á sama tíma er sterk vísbending um skipulag. Einhver sá til ţess ađ einmitt ţessir tveir miđlar sátu einir ađ fréttinni. Ađ kveldi dags ţann 21. maí 2021 skrifađi Ţóra Arnórsdóttir, sem var yfirmađur Ađalsteins ţrem vikum fyrr, sjá 1. hér ađ neđan, eftirfarandi fćrslu á einkareikning sinn á Facebook:
Mér er eiginlega ţvert um geđ ađ deila ţessu. En stundum ţarf ađ gera fleira en gott ţykir.
Međ fćrslunni deildi Ţóra frétt Ađalsteins á Stundinni. Hvers vegna sagđi Ţóra ekki stolt frá ţví ađ Ađalsteinn vćri strax farinn ađ skúbba á Stundinni, ţrem vikum eftir ađ hann hćtti á RÚV? Hvers vegna gaf Ţóra til kynna, međ orđunum ,,ţvert um geđ," ađ frétt Ađalsteins vćri subbufrétt, eiginlega á mörkum ţess ađ standa undir nafni?
Ţegar á daginn kom ađ Ađalsteinn á Stundinni og Ţórđur Snćr á Kjarnanum hringdu í Pál skipstjóra međ ellefu mínútna millibili 20. maí 2021, daginn fyrir birtingu, ţurfti ekki frekari vitnanna viđ. Spurningin var ađeins hver skipulagđi. Frúin á Glćpaleiti varđ strax líkleg tilgáta.
Leiđari Ađalsteins og Arnars Ţórs frá í gćr er afhjúpandi fyrir ţćr sakir sem ekki er fjallađ um. Hér eru atriđi sem leiđari tvímenninganna ţegir um enda segja ţau sögu sem sakborningarnir í niđurfelldri lögreglurannsókn vilja ekki ađ heyrist.
1. Ađalsteinn tilkynnti á Facebook starfslok á RÚV/Kveik ţrem dögum fyrir byrlun Páls skipstjóra Steingrímsson, eđa 30. apríl 2021. Ađalsteinn hćtti fyrir hádegi á RÚV en var kynntur sem nýr liđsmađur á Stundinni eftir hádegi sama dag. Einsdćmi er ađ blađamađur skipti um vinnustađ í hádeginu.
2. Páli skipstjóra var byrlađ kvöldiđ 3. maí heima hjá sér á Akureyri. Um nóttina varđ ađ lífga hann viđ međ til ţess gerđum tćkjum. Hann var tćknilega dauđur um stund, áđur en lífgunartilraunir báru árangur. Flogiđ var međ hann međvitundarlausan á gjörgćslu Landsspítalans um hádegisbil daginn eftir. Síđdegis sama dag, 4. maí 2021, fer ţáverandi eiginkona skipstjórans međ síma hans yfir götuna, Bústađarveg, sem liggur á milli spítala og RÚV á Efstaleiti. Á RÚV tekur á móti henni Arnar Ţórisson framleiđslustjóri á Kveik. Ţau setjast inn á skrifstofu, Arnar fer fram og sćkir yfirmann sinn, Ţóru Arnórsdóttur. Ţau ţrjú fara á ađra skrifstofu ţar sem ţriđji RÚV-mađurinn bíđur. Hann tekur viđ símanum úr höndum Ţóru. Daginn eftir fćr konan síma skipstjórans afhentan á ný og skilar honum á sjúkrabeđ Páls, sem var enn međvitundarlaus. Skipulagiđ er byrla, stela, afrita og skila.
3. Fyrir byrlun, eđa í apríl 2021, var Ţóra búin ađ kaupa Samsung-síma, samskonar og Páls skipstjóra og valdi á hann símanúmer sem var ţađ sama og á síma skipstjórans, nema síđasti tölustafurinn, 680 2140, en númer Páls var 680 214X. Úr afritađa símanum á RÚV međ númeriđ 680 2140 voru einkagögn Páls send á Kjarnann og Stundina, m.a. skjáskot sem voru tekin af samskiptum skipstjórans. Skjáskotin voru notuđ til ađ myndskreyta. Sjálfar fréttirnar voru ađ öllum líkindum skrifađar á RÚV og sendar međ tölvupósti á Stundina og Kjarnann til birtingar.
4. Veturinn og voriđ 2021 voru eiginkonan og Páll skipstjóri í skilnađarferli. Skilnađarlögmađur konunnar var Lára V. Júlíusdóttir. Í rannsóknagögnum lögreglu er tölvupóstur frá konunni dagsettur 3. október 2021. Viđtakendur eru Lára V. Júlíusdóttir, Ţóra Arnórsdóttir, Ađalsteinn Kjartansson og Ingi Freyr Vilhjálmsson blađamađur og fyrrum sakborningur. Textinn:
Sćl Lára.
Ég gef hér međ Ţóru Arnórsdóttur og Ađalsteini Kjartanssyni umbođ til ađ ná í símkortin mín til ţín ef ţau óska eftir ţví ađ fá ţau í hendur ásamt öđru efni sem ţú kannt ađ hafa frá mér.
Dagsetningin, 3. október 2021, er mikilvćg. Búiđ var ađ bođa konuna í fyrstu yfirheyrslu, sem fór fram tveim dögum síđar. Konan átti tvo síma, enda talar hún um ,,símkortin" í tölvupóstinum. Augljóst er af samhenginu ađ um er ađ rćđa svar konunnar viđ tilmćlum um ađ hún veiti ađgang ađ símkortum sínum, sem geyma samskiptaupplýsingar. Hvers vegna vildu blađamenn komast í einkagögn konunnar ef hún var ţeim ókunn og óviđkomandi?
5. Áđur en konan veitti blađamönnum ađgang ađ símkortunum á skrifstofu Láru var Ţóra Arnórsdóttir í reglulegu sambandi viđ konuna, samkvćmt símtalaskrá í gögnum lögreglu. Ţann 24. ágúst 2021 töluđu ţćr saman í átta skipti. Hluti samskiptanna er í sms-skeytum. Ţar ráđleggur Ţóra konunni ađ ,,breyta ÖLLUM lykilorđum alls stađar." Ţá fer Ţóra fram á ađ konan afhendi ónafngreindum manni einkasíma sinn. Ţóra skrifar:
Hann vill helst ekki hittast (mjög varkár mađur, skiljanlega) en spyr hvort ţú treystir honum fyrir símanum einn dag?
Leiđari Ađalsteins og Arnars Ţórs nefnir ekkert af atriđum 1.- 5. hér ađ ofan. Fyrstu ţrjú atriđin lúta ađ undirbúningi og framkvćmd tilrćđisins gegn Páli skipstjóra. Seinni tvö snúa ađ viđbrögđum fyrrum sakborninga eftir ađ lögreglurannsókn hefst. Atriđi 2.- 5. sýna veruleg tengsl viđ andlega veika konu sem byrlađi eiginmanni sínum, stal síma hans og fćrđi blađamönnum.
Međ ţögn sinni um ţessi efnisatriđi viđurkenna tvímenningarnir ađ ţeir hafa ekki frásögn sem rímar viđ ţekktar stađreyndir úr málsgögnum lögreglu. Fleiri efnisatriđi eiga eftir ađ bćtast viđ er skipstjórinn fćr ađgang ađ öllum rannsóknargögnum. Hingađ til er ađeins hluti gagnanna kominn í umferđ til sakborninga og brotaţola.
Leiđarinn eyđir löngu máli í ađ gagnrýna rannsókn lögreglu. Mestu mistök lögreglunnar eru ţau ađ byrja ekki strax ađ rannsaka ađdraganda byrlunar og ţjófnađar. Tilfallandi hefur ţar samúđ međ lögreglunni. Á Íslandi á ţađ ekki ađ gerast ađ RÚV er miđstöđ alvarlegra afbrota, ţar sem tekiđ er viđ stolnum síma er fékkst međ byrlun. En ţađ gerđist.
Ţađ ţekkist ekki á fjölmiđlum, hvorki hér né erlendis, ađ ein ritstjórn taki viđ gögnum og vinni úr ţeim en láti fréttirnar síđan í hendur ritstjórna annarra fjölmiđla. En einmitt ţetta gerđist. RÚV tók viđ síma skipstjórans og afritađi og sendi efniđ til birtingar í Stundinni og Kjarnanum. RÚV vissi ósköp vel ađ fréttirnar héldu ekki máli. En ţađ mátti freista ţess ađ birta ţćr í jađarmiđlum til ađ reisa reiđibylgju í samfélaginu. Ţađ tókst. Reiđibylgjan var notuđ til ađ réttlćta fréttirnar. En ef fréttirnar áttu erindi til almennings hvers vegna birti RÚV ţćr ekki? Hvers vegna ţessi leyniađgerđ RSK-miđla?
Ţegar Ađalsteinn skipti um vinnustađ í hádeginu 30. apríl 2021, af RÚV á Stundina, var sími skipstjórans ekki kominn í hús á Efstaleiti. En Ţóra Arnórsdóttir var búin ađ kaupa Samsung-síma til ađ afrita síma skipstjórans. Eru tveir plús tveir ekki fjórir?
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.