Úkraína er evrópskt vandamál

Bandaríkin eru ţreytt á kröfum Evrópuríkja ađ ausa vopnum og fé í Úkraínu, sem í raun er evrópskt vandamál. Á ţessa leiđ mćlir Elbridge Colby í Telegraph. Colby er handgenginn Trump. Telegraph telur ađ sigri Trump forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í haust fái Colby áhrifastöđu í bandarískri utanríkisstefnu.

Úkraínudeilan var seld almenningi á vesturlöndum sem framhald af kalda stríđinu, barátta góđs og ills, borgaralegs lýđrćđis gegn kommúnisma. Í raun er deilan ,,gamaldags landvinningastríđ", eins og Ţordís Kolbrún utanríkis orđar ţađ. Bandaríkin og Evrópusambandiđ ćtluđu sér landvinninga í austri, fyrst Úkraína síđan Rússland.

Kremlarbćndur töldu sig hafa loforđ frá falli Berlínarmúrsins og sameiningu Ţýskalands ađ Nató og vestriđ hygđu ekki á útţenslu í austurveg. Lítiđ fór fyrir ţeim efndum. Eftir ađ Miđ-Evrópa og Pólland og Eystrasaltsríkin urđu Nató-ríki um og eftir aldamót sögđu Rússar hingađ og ekki lengra. Ef Nató vćri friđarbandalag, eins og látiđ er í veđri vaka, hefđi Rússum veriđ bođin ađild eftir fall járntjaldsins. En ţađ gerđist ekki, stóđ aldrei til.

Vestriđ vildi Rússland ekki sem bandamann heldur sífellt veikari andstćđing er loks gćfi sig upp sem hjálenda án ţess ađ skoti vćri hleypt af. Stjórnvísin byggđi á kaldastríđsforsendum, vestriđ ynni Rússland međ efnahagsmćtti líkt og Sovétríkin voru lögđ ađ velli. Er Úkraínu og Georgíu var bođin Nató-ađild á leiđtogafundi í Búkarest 2008 sendu Rússar vopnuđ skilabođ, lögđu undir sig Georgíu í ágúst sama ár. Smáríki, var sagt í höfuđborgum vestursins. Rússar gjamma en bíta ekki, hafa ekki til ţess tennur.

Stjórnarbylting í Kćnugarđi 2014 setti Úkraínudeiluna í farveg, sem fyrir hálfu ţriđja ári breyttist í fullveđja stríđ. Búkarest-yfirlýsingin er frá apríl 2008. Er fram líđa stundir verđur hún til marks um háflćđi vestrćns hroka. Í yfirlýsingunni er talađ um árangursríkan herleiđangur í Afganistan. Ćvintýrinu í múslímaríkinu lauk í ágúst 2021, 13 árum eftir Búkarest-yfirlýsinguna. Í 20 ár reyndi vestriđ ađ umskapa Afganistan en mistókst herfilega. En, auđvitađ, ţá er um ađ gera ađ umturna kjarnorkuveldinu Rússlandi, léttmeti í samanburđi viđ Afganistan, er ţađ ekki?

Flest gengur vestrinu í óhag í Úkraínu. Stríđiđ mjakast hćgt, mćlt í landvinningum, en ţađ eru Rússar sem sćkja. Stjórnin í Kćnugarđi verst međ vestrćnum vopnum og fjármagni. Hve lengi enn er óvíst. Hitt er ţeim ljóst, sem fylgjast međ, ađ hverfandi líkur eru á hamingjuskiptum stríđsađila.  

Nái Trump kjöri í nóvember gćti annađ af tvennu gerst. Bandaríkin kipptu ađ sér höndunum og Úkraína yrđi ofurseld Rússum. Hinn kosturinn er friđarsamningar, mjög á rússneskum forsendum.

Stuđningur kjósenda á vesturlöndum viđ Úkraínu mun ekki aukast. Almenningur er nógu upplýstur til ađ átta sig á ađ bitamunur en ekki fjár er á lýđrćđisást í Kćnugarđi og Moskvu. Pútín í Rússlandi er međ ţađ umfram Selenskí í Úkraínu ađ hafa lögmćtt lýđrćđislegt umbođ. Kjörtímabili Selenskí rann út í vor. Engar kosningar, stjórnađ međ tilskipunum. Fyrir margt löngu voru menn í hermannabúningum ráđandi afl í Suđur-Víetnam, međ Bandaríkin sem bakhjarl en litla alţýđuhylli. Selenskí sést aldrei nema í kakí-fötum. 

Evrópa, í merkingunni Evrópusambandiđ plús Bretland, á ekki rođ viđ Rússlandi. Ţrátt fyrir ađ telja hálfan milljarđ, Rússland hýsir 150 milljón sálir, er Evrópusambandiđ efnahagsrisi á hernađarlegum brauđfótum sem háđur er rússneskum hrávörum, einkum gasi og olíu en einnig korni sem áđur var úkraínskt en brátt rússneskt. Án Bandaríkjanna tapast Úkraína.

Litla Ísland má prísa sig sćlt ađ vera ekki á áhrifasvćđi Evrópusambandsins.

 

 


mbl.is Selenskí mćtir á NATO-fundinn
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Selenskí má eiga ţađ ađ hann er ákaflega snjall sölumađur

og hefur tekist ađ fá ráđamenn til ađ opna ríkisfjárhirslur og veita ómćldum fjármunum til Úkraínu sem enginn hefur eftirlit međ hvar endar

og enn verđur bćtt í á ţessum NATO fundi í USA

Grímur Kjartansson, 10.7.2024 kl. 09:05

2 Smámynd: booboo

Góđur pistill.

Verst er ađ fólk eins og ŢKRG og fleiri Nato og EU hausar halda ađ stríđ til landvinninga séu athćfi vondra manna eins og Putin, en ekki ţau sjálf.

booboo , 10.7.2024 kl. 11:31

3 Smámynd: Hörđur Ţormar

Rússar samţykktu sameiningu Ţýskalands gegn loforđi um ađ Nato setti ekki upp herstöđvar í A-Ţýskalandi, ekki veit ég betur en ađ stađiđ hafi veriđ viđ ţetta loforđ.

Pólland og Eystrasaltsríkin fóru fram á inngöngu í Nato. Ekki er mér kunnugt um ađ Rússar hafi tekiđ loforđ frá Ţjóđverjum um ađ stćnda gegn henni og var hún samţykkt.

Eftir valdatöku Pútins fóru Rússar ađ hervćđast og jafnframt var aliđ á ótta vegna stćkkunar Nato ţrátt fyrir ţađ ađ flest Nato ríki hafi dregiđ stórlega úr útgjöldum til hermála. 

Hörđur Ţormar, 10.7.2024 kl. 11:52

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Samkvćmt evrópuútgáfu Politico situr Brussel elíta nú og brugga Orban Ungverjalandsforseta launráđ. Hann vogađi sér, sem forseti Evrópuráđsins ađ leita leiđa til ađ koma á samtali um friđ í Ukrainu. Elitan er fjúkandi ill og planleggur ađ stytta embćttistima Orban og koma ţćgum ţjóni, Póllandi, í stólin.

Ţađ er semsagt međ öllum ráđum sem ESB ćtlar ađ koma í veg fyrir friđ. 

Ragnhildur Kolka, 10.7.2024 kl. 12:51

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband