Hælisglæpir og siðblinda í boði RÚV, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar

Siðblindur hælisleitandi Mohamad Kourani lék lausum hala á hér á landi, stundaði líkamsárásir og ofbeldisbrot með velvild og samþykki þingmanna Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar. Í fjölmiðlum nýtur glæpamaðurinn verndar RÚV.

Hvernig má rökstyðja ofangreinda ályktun? Jú, bæði mbl.is og visir.is segja frá dómsmálinu þar sem siðblindi glæpamaðurinn svarar til saka. RÚV segir enga frétt af ofbeldisfulla hælismanninum. Ríkisfjölmiðillinn birtir ótal fréttir um veik börn í röðum hælisleitenda en þegir um glæpamennina. RÚV skipulega dregur upp þá mynd að hælisfólkið sé einkum hjálparvana börn. Veruleikinn er annar.

Siðblindur Múhameð Kourani kemur hingað til lands árið 2018 frá Sýr­landi og fær alþjóðlega vernd. Vegna gallaðra útlendingalaga var ekki hægt að senda ofbeldismanninn úr landi þegar fulljóst var að maðurinn er óþokki. Þegar vonum seinna tókst betrumbæta lögin greiddu þingmenn Pírata atkvæði gegn lögunum en þingmenn Samfylkingar og Viðreisnar sátu hjá.

RÚV og þingmenn Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata vilja íslensku samfélagi illt. Óþokkaöflin linna ekki látunum fyrr en Ísland verður þriðja heims ríki.


mbl.is „Ég mun drepa þig og fjölskyldu þína“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Svo skal múslimavæða þjóðina hægt og bítandi í boði "góða fólksins". 

Sigurður I B Guðmundsson, 4.7.2024 kl. 10:19

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ótrúlegt að þetta hafi fengið að ganga svona lengi. Það ætti að dæma manninn til vistar hjá Pírötum. Kannski á skrifstofunni hjá þeim. 

Ragnhildur Kolka, 4.7.2024 kl. 10:43

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Senda hann úr landi strax ásamt pírötunum.

Þeir hljóta að elska umhverfi múslima úr því þeim er

svo illa við kristin samfélög.

Sigurður Kristján Hjaltested, 4.7.2024 kl. 13:29

4 Smámynd: Guðbjörg Snót Jónsdóttir

Ég tek undir þetta með Sigurði, enda sagði lærimeistari minn í kirkjusögu, sr. Jónas Gíslason vígslubiskup við okkur nemendur sína, meðan hann ver prófessor í kirkjusögu við guðfræðideildina, að við Evrópubúar mættum vara okkur á því, að hvar sem Múslímar fara um og ekki síst setjast að, þá reyni þeir að boða trú sína og fá sem flesta til þess að verða múslímar, enda hafa þeir líka meiri peninga heldur en við hin til þess að breiða út boðskapinn. Þess vegna hafi líka verið lögð mikil áhersla á það á miðöldum, þegar múslímar réðust inn í Evrópu, þá sjóleiðina til Spánar, að stöðva framrás þeirra, áður en þeir næðu lengra en það, og þar með hófust styrjaldirnar móti þeim, og krossferðirnar til þess að hindra, að þeir kæmust yfirleitt hfir til Evrópu. Það er hægara sagt en gert í dag, þegar samgöngur eru með öðru móti en þá var. Það þarf að vara sig á þessu fólki, hvernig sem á það er litið. Það er víst áreiðanlegt.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir, 4.7.2024 kl. 13:51

5 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þið skiljið ekki: þessi gaur er óskabarn sósíalista. Hann er að þeirra mati ideal borgarinn.

En þið hinsvegar ekki.

Ásgrímur Hartmannsson, 4.7.2024 kl. 17:26

6 Smámynd: Hörður Þormar

Ef menn geta gefið sér tíma þá er hér fróðlegt viðtal við mann sem kann Kóraninn utanbókar:                         Hamed Abdel-Samad's Warning: Islamism's True Dangers           

Hörður Þormar, 4.7.2024 kl. 18:01

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband