Öfgar í hugmyndafræði, ekki veðri

Í viðtengdri frétt er dæmi um veðuröfgar að hiti í Sádi-Arabíu hafi farið yfir 50 gráður selsíus. En sé flett upp í alfræðibók kemur á daginn að hitinn í eyðimerkurlandinu fer iðulega yfir 50 gráður að sumri til, stundum 55.

Til skamms tíma var breytilegt veðurfar kennt við árstíðir. Á veturna er kaldari en á sumrin. Nú aftur er hversdagslegt veður kallaðar öfgar.

Vísindin hamfarasinna eru þunnur þrettándi, svo vægt sé til orða tekið. Trúarjátningin, blessuð af Sameinuðu þjóðunum, er að meðalhiti jarðar megi ekki hækka meira en um 1,5 gráðu frá iðnbyltingu til að ekki verði aftur snúið - jörðin verði óbyggileg sökum hamfarahita.

En viti menn, allt bendir til að heimurinn sé þegar 1,5 gráðu hlýrri en hann var á 19. öld. Eðlisfræðingurinn og vísindamiðlarinn Sabine Hossenfelder, sjálf haldin hamfaratrú, rekur óvissuna í stuttu myndskeiði. Þar þræta spámennirnir Jim Hansen og Michael Mann hvort hlýnun frá iðnbyltingu sé meiri eða minni en 1,5 gráða. Mann segist hafa þrjár háskólagráður í eðlisfræði og hann geti fullyrt að hlýnunin sé ekki meira en 1,3 gráða. Rökfastur veðurguðinn með háskólapróf í fleirtölu.

Hvorki Sabína né veðurguðirnir vekja athygli á að hitastig miðaldahlýskeiðsins, um 900-1300, var 1,5 gráðu hærra en það er í dag. Engin urðu ragnarökin. Þvert á móti. Eiríkur rauði og félagar bjuggu í velsæld við norrænan kvikfjárbúskap í Grænlandi er hlýindi gáfu græna haga. Brátt varð um norræna byggð á Grænlandi er litla ísöld gekk í garð um 1300 og stóð til um 1900. Við lá að kuldi og náttúruhamfarir, móðuharðindin, gerðu Ísland óbyggilegt.

Hamfaratrúin er ekki reist á vísindum, segir loftslagsvísindamaðurinn Richard Lindzen, heldur hugmyndafræði. Hann rekur upphaf trúarkreddunnar til pólitískra aðstæðna í Bandaríkjunum á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Marxismi vinstrimanna var genginn sér til húðar og eitthvað þurfti að finna í staðinn til að trylla lýðinn. Koltvísýringur, CO2, og hamfarahlýnun af völdum fjölskyldubílsins var vinningstvenna. Vinstrimenn klappa æ síðan þennan stein og verður ágengt. Íhaldsflokkurinn í Bretlandi og Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi hoppuðu á hamfaravagninn - báðir flokkarnir raunar núna í útrýmingarhættu.

Koltvísýringur er lífsnauðsynleg lofttegund, fæða plantna. Án koltvísýrings væri jörðin óbyggileg, segir annar loftslagsvísindamaður, William Happer. En við horfum upp á krossferð gegn þessari náttúrulegu lofttegund undir þeim formerkjum að hún valdi hamfarahlýnun og veðuröfgum.

Ísland er orðið tilraunadýr í skringilegum uppátækjum hamfaraheimskunnar. Trjákurl voru flutt í massavís til landsins og sökkt undan Íslandsströndum, að sögn til að draga úr koltvísýringi í andrúmsloftinu. Í Hafnarfirði er milljarðaverkefni á döfinni að dæla fljótandi koltvísýringi í berglög, innfluttum í sérhönnuðum skipum frá Evrópu. Hvorugt mun nokkru breyta um loftslagsbúskap jarðarinnar. Staðbundnar aðstæður á Íslandi gætu aftur versnað. Fíflunum er att á foraðið.

 

  

 


mbl.is Öfgakennt veðurfar veldur usla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Dögg Sverrisdóttir

Veit ekki betur en þessi hugmyndafræði sé komin í námsefni grunnskólabarna. Þeir hafa mikil völd sem gefa búa til námsefni og kennarar fylgja námsefninu eins og þrælar húsbónda síns.

Helga Dögg Sverrisdóttir, 2.7.2024 kl. 08:48

2 Smámynd: Halldór Þormar Halldórsson

Nú veit ég ekki hvað er rétt eða rangt almennt séð varðandi hækkandi hitastig, annað en það sem er í fréttum. En ef greinin sem vitnað er til er lesin, kemur í ljós að það er lagt mjög ranglega út af efni hennar.  Í henni segir að hitastigið í landinu öllu fari jafnan yfir 38° á sumrin og í eyðimörkinni fari hitastigið oft yfir 50° eða jafnvel 55°. Það er ekki tilviljun hvar menn hafa reist byggðir sínar, hvorki hér né í Sádi Arabíu. Fréttir undanfarið um hækkandi hita fjalla um að hitastigið í byggð fari hækkandi, en þar sem heitast er búa fæstir, enda velja menn sér staði til að reisa byggðir þar sem eru vatnsból, ár og lækir.

Halldór Þormar Halldórsson, 2.7.2024 kl. 10:17

3 Smámynd: booboo

Halldór Þormar. skoðaðu skilgreiniguna á Urban Heat Island Effect, og þá færðu útskýringuna á hvers vegna hiti fer hækkandi í byggð.

booboo , 2.7.2024 kl. 13:11

4 Smámynd: booboo

Merkilegt þetta Running Tide fyrirtæki. Það er eitthvað svo ljómandi yndislegt við það. Enn slíkt er oft bara svik og prettir.

Ef þú tekur trjákurl og kveikir í því þá brennur það vel og kolefni losa út í andrúmsloftið. Það vita allir. En ef þú dreifir því á jörðina eða bara hendir út í sjó þá rotnar það og leysist upp með tímanum og kolefni fer út í andrúmsloftið eða í sjó. Það er líka nokkuð ljóst, en RT fyrirtækið sagði að trjákurlið myndi drekka í sig kolefni og geyma það til eilífðar. Mikið getur fólk verið auðtrúa.

booboo , 2.7.2024 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband