Þriðjudagur, 19. desember 2023
Vinstrimenn gegn hinsegin hátíð, styðja feðraveldi
Júróvisjón er alþjóðleg hinsegin hátíð og hefur lengi verið. Enginn hommi með sjálfsvirðingu lætur ógert að hafa skoðun bestu söngvunum ár hvert. Vinstrimenn á Íslandi mótmæla að íslenskur sönghópur stígi á sviðið næsta ár. Ástæðan er stríð Hamas við Ísrael.
Hams stjórnar Gasa-ströndinni, gerðu þaðan árás 7. október á Ísrael, drápu um 1400 almenna borgara í fjöldamorðum og tóku á þriðja hundrað gísla, þar á meðal konur og börn. Ísraelsher gerði innrás í Gasa til að frelsa gísla og uppræta hryðjuverkasamtökin.
Mótmælin gegn þátttöku Íslands í Júróvisjón á næsta ári eru til stuðnings Hamas. Vinstrimenn telja ótækt að Ísland deili sama sviði og Ísrael.
Samkynhneigðir, og aðrir sem kalla sig hinsegin, geta um frjálst höfuð strokið í Ísrael. Annað gildir um Gasa-ströndina undir ráðstjórn Hamas. ,,Orðið á götunni er að ekki eru nógu mörg háhýsi í Gasa uppistandandi til Hamas geti lengur drepið homma með því að fleygja þeim fram af efstu hæð," segir Douglas Murray, sjálfur samkynhneigður. Hann bætir við: ,,það er ekki hægt hægt að vera hinsegin og styðja Hamas. Þú verður að velja."
Murray segir í framhaldi ýmislegt um vinstrimenn sem þykjast hlynntir mannréttindum en styðja herskáa íslamista eins og Hamas. Fæst er prenthæft. Í viðtali Chris Williamson við Murray bar einnig á góma femínista er krefjast frjálsra fóstureyðinga en styðja Hamas. Í Gasa eru fóstureyðingar bannaðar. Palestínskar konur fara til Ísrael vilji þær þungunarrof.
Hamas er íslamskt feðraveldi. Almennt gildir í trúarmenningu múslíma að konan er undirsett karlinum. Múslímaríki skrifa ekki upp á mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Mannréttindaskrá múslímaríkja, Kaíró-yfirlýsingin, segir skýrt og ótvírætt að eiginmaðurinn sé ábyrgur fyrir heimili og fjölskyldu (gr. 6 b).
Vestræn mannréttindi og hugmyndafræði Hamas eru andstæður. Vinstrimenn sem styðja Hamas eru í mótsögn við sjálfa sig, standi þeir á annað borð með mannréttindum. Ef tvöfalt siðferði væri stjórnmálaflokkur héti fyrirbærið Vinstriflokkurinn.
Óeðlilegt ef Rúv hlustar ekki á ákallið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Kompás vinstrimanna er út og suður og þessvegna lenda þeir alltaf í mótsögn við sjálfa sig. Má þá, m.a. vísa í feminista/karlrembuna Þorstein E. sem þú kjöldróst í gær.
Ragnhildur Kolka, 19.12.2023 kl. 11:38
Vinstrimenn löðrungaðir.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 19.12.2023 kl. 13:38
Hamasliðar virðast njóta dyggs stuðnings vinstri femínista og homma, svo að ekki sé minnst á írönsku múllana sem sjá hér tækifæri til þess að kveða niður öll mótmæli gegn sér. Athyglisverð samstaða feminista, homma og múlla.
Hörður Þormar, 19.12.2023 kl. 14:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.