Þriðjudagur, 5. desember 2023
Úkraína tapar, segir Stoltenberg
Búið ykkur undir slæmar fréttir frá Úkraínu, segir Stoltenberg framkvæmdastjóri Nató. Úkraína gefur eftir á nær allri víglinunni sem er um 1000 km löng. Það hallar á Úkraínu í mannafla. Skotfæraskortur stórskotaliðs gerir vart við sig, en stríðið er einkum háð með þungavopnum.
Tvennt annað gerir Úkraínumönnum sérstaklega erfitt fyrir. Í fyrsta lagi þverr stuðningur frá vestrinu. Vopn, vistir og fjármagn renna ekki í jafn stríðum straumi til Garðaríkis og fyrstu mánuði stríðsins, sem verður tveggja ára í febrúar. Í öðru lagi er vaxandi óeining í Kænugarði. Selenskí forseti er gagnrýndur opinberalega, t.d. af Klitskó, borgarstjóra höfuðborgarinnar. Salusní yfirhershöfðingi er sagður í viðræðum við Rússa um friðarsamninga án aðkomu forsetans.
Ofmælt væri að segja Úkraínuher að hruni kominn. Þótt fréttir séu af liðhlaupi eru þær ekki af umfangi er gefur tilefni til að halda að uppgjöf sé yfirvofandi. Þrátt fyrir erfiða stöðu og skort á hergögnum er ekki annað að sjá en Úkraínuher sé enn vel bardagahæfur.
Á hinn bóginn. Ef baklandið gefur eftir, stjórnkerfið í Kænugarði, bitnar það fyrr en síðar á framlínuhermönnum. Öll opinber kerfi, hvort heldur efnahagskerfi eða varnarmál, þola óstjórn og óreiðu að einhverju marki. Fjárveitingar frá Bandaríkjunum og Vestur-Evrópu halda innviðum Úkraínu gangandi og flestir fá sneið af kökunni. Viðtengd frétt gefur vísbendingu um að fjárstreymið, sem þegar hefur minnkað, verði enn minna á næstunni. Það gæti riðið baggamuninn. Eldmóð hugsjóna þarf á vígvellinum en heimavígstöðvarnar ganga fyrir fjármagni.
Þrýst er á Úkraínustjórn að fá Rússa að samningaborðinu til að bjarga því sem bjargað verður. Í erfiðri stöðu, að ekki sé sagt vonlausri, líktust samningar meira uppgjafaskilmálum fremur en friðarsamkomulagi. Hvað ef Pútín Rússlandsforseti sé áhugalaus um samninga? spyr þýska útgáfan Die Welt. Rússar telja sig á sigurbraut. Fjölmiðlar í Bjarmalandi birta greinar um eftirmála uppgjafar Garðaríkis.
Slæmu fréttirnar, sem Stoltenberg Nató-stjóri boðar, gætu verið upphafið að endalokum Úkraínustríðsins. Að lokum enda öll stríð með friði. En sum ríki er áttu sér tilvist fyrir stríð lifa ekki af friðinn.
Stuðningur við Úkraínu gæti þurrkast út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Útþennsla NATO er undirrót þessa stríðs og vopnasendingarnar hafa nú nánast þurrkað út mannaflann. Herkvaðning tekur nú til 17-70 ára og konur deyja nú í skotgrøfunum. Jafnvel ófrískar. Þegar sagt var að stuðningur yrði "svo lengi sem þarf" var átt við "meðan byssufóðrið endist". Stríð er nefnilega ekki abstrakt mynd af landakorti. Stríð er dauðans alvara.
Ragnhildur Kolka, 5.12.2023 kl. 10:09
Vonandi sigrar raunsæið hér. Nú keppast báðir aðilar við það að senda eldflaugar á höfuðborgir hvers annars, aðallega með mannfalli borgaranna. Dregin verður lína í sandinn um stöðuna núna, enda kosta breytingar endalaust mannfall.
Ívar Pálsson, 5.12.2023 kl. 14:10
"Úkraína verður að vinna þetta stríð" sagði utanríkisráðherra Íslands og rak rússneska sendiherrann úr landi. Þjóðarmorð, dráp á fréttamönnum og starfsmönnum hjálparsamtaka á Gaza vekur engin viðbrögð. Stóru stákarnir í útlandinu stjórna Íslandi, ekki Íslendingar.
Júlíus Valsson, 5.12.2023 kl. 15:01
Fjármagnið sem streymt hefur til Úkraínu hefur verið talið í skriljónum og eins og þú bendir á " flestir fá sneið af kökunni" og lítið er fylgst með hvað verður um peningana
Við frið mundi fjárstreymið dragast saman og meira spurt um hvað er gert um peningana og ekki látin duga mynd af einhverju tjaldskrifli einhversstaðra sem sönnun fyrir að Miljarða króna hersjúkrahús hafi verið keypt fyrir framlagið frá Þórdísí Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttir
Grímur Kjartansson, 5.12.2023 kl. 16:55
Blessaðar ungu ráðskonur okkar, hafa ekki lært það sem við gamlingjar vissum og reyndum að miðla,að háþróaður her má sín lítt gegn ættjarðarvinum sem sundrast aldrei þegar land þeirra er undir "einn fyrir alla og allir fyrir einn" Þótt berjist með mesta herveldi heims.
Helga Kristjánsdóttir, 5.12.2023 kl. 20:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.