Ósannað að maðurinn valdi hlýnun jarðar

Tilgátan að losun mannsins á koltvísýringi, CO2, valdi hlýnun jarðar er ósönnuð. Væri tilgátan sönnuð þyrfti enga Grétu Thunberg til að reka áróður. Um 1800 vísindamenn og sérfræðingar skrifa undir yfirlýsingu um að engin loftslagsvá vofi yfir. Ef það væru svo að manngerð hlýnun væri sönnuð færi starfsferill þessara 1800 vísindamanna og sérfræðinga beint í ruslið. Tveir Nóbelsverðlaunahafar eru í hópnum. 

Richard Lindzen, einn þeirra er skrifa undir yfirlýsinguna, segir enga hamfarahlýnun. Heimurinn hefur hlýnað um eina gráðu frá lokum litlu ísaldar, um 1900. Það eru ekki hamfarir heldur eðlileg þróun.

Annar sem skrifar undir er Ian Plimer. Á einni glæru (3:20) í nýlegum fyrirlestri útskýrir Plimer hvers vegna tilgátan um manngerða hlýnun er út í bláinn, fær aldrei staðist.

97 prósent af öllum koltvísýringi í andrúmsloftinu er náttúrulegur. Aðeins 3 prósent er manngerður. Þessi þrjú prósent geta ekki stjórnað hitafari jarðkringlunnar nema menn trúa í leiðinni að 97 prósentin, þau náttúrulegu, hafi ekki áhrif. Áróðurinn fyrir loftslagsvá tekur ekki mið af náttúrulegum ferlum, einblínir á útblástur af mannavöldum, sem er sáralítill af heildinni, eða 3 prósent.

Koltvísýringur í andrúmslofti jarðar mælist um 400 ppm. Einingin ppm stendur fyrir hlutfall af milljón (parts per million). Yfirfært í prósentur er 400 ppm 0,04 prósent. Dæmi eru um margfalt hærra hlutfall koltvísýrings löngu fyrir daga mannlífs á jörðinni. 

Ef koltvísýringur, CO2, tvöfaldaðist í andrúmsloftinu, úr 400 ppm í 800 ppm, myndu gróðurhúsaáhrifin aðeins aukast um 1%, segir loftslagsvísindamaðurinn William Happer. Meðalhiti jarðarinnar gæti hækkað um 0,75 gráður. Ef eitthvað yrði það til bóta fyrir líf jarðarbúa. Í jarðsögunni hafa yfir 9000, níu þúsund, ppm af CO2 mælst í andrúmslofti.

Vísindi eru, eða eiga að vera, þekking sem hægt er að sannreyna. Trúarbrögð eru aftur ósannanleg, menn verða að trúa án sannanlegrar þekkingar. Loftslagsvá er trúarkredda án vísindalegrar undirstöðu.

 

 


mbl.is Forseti COP28 sagður afneita hlýnun jarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

Ljós rann upp fyrir olíu Aröbum. Hvað verður um okkur?

Guðmundur Böðvarsson, 4.12.2023 kl. 12:57

2 Smámynd: Hörður Þormar

"Tilgátan" um að losun CO2 valdi hlýnun jarðar er ósönnuð eins og allar aðrar vísindalegar kenningar, hvorki afstæðiskenning Einsteins né þróunarkenning Darwins hafa verið sannaðar. En það hefur ekki tekist að afsanna þær og það skiptir máli. Ef líkur eru á að aukning CO2 geti valdið "hamfarahlýnun" þá ber að koma í veg fyrir það ef mögulegt er.

Stjarneðlisfræðingurinn, Harald Lesch, hefur bent á að fyrr í jarðsögunni hafi magn CO2 og metans í andrúmsloftinu verið margfalt á við það sem nú er, sem betur fer, því að þá var sólarorkan miklu minni og jörðin verið eins og ískúla. Væri hún það líklegast enn þann dag í dag og því ólífvænleg. (Sjá Youtube, Harakd Lesch, Klima. 

Hörður Þormar, 4.12.2023 kl. 13:02

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

a) Engin mæligögn eru "áróðrinum" til grundvallar.

b) Allur áróðurinn byggist á tölvulíkönum IPCC.

Guðjón E. Hreinberg, 4.12.2023 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband