Mamma, ég drap tíu gyðinga, tíu

,,Mamma, sonur þinn drap í dag tíu gyðinga. Með eigin hendi drap ég þá. Ég hringi til þín úr síma frá dauðum gyðingi. Ég drap tíu gyðinga, tíu. Segðu pabba. Ég drap tíu gyðinga. Hendur mínar eru ataðar blóði. Mamma, sonur þinn er hetja. Móðirin grætur. Faðirinn kallar: drepa, drepa, drepa, drepa."

Ofanritað er hljóðupptaka af búkmyndavél eins hryðjuverkamanna Hamas sem stóðu að fjöldamorðum í Suður-Ísrael 7. október. Ísraelsmenn tóku saman upplýsingar í hljóð og mynd um atburðinn 7. október og kynntu blaðamönnum, 43 mínútur alls. Textinn birtist í Die Welt. Hamas drap um 1400 manns, einkum varnarlausa borgara, og tóku yfir 200 í gíslingu. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Þetta er gáfulegt helvíti. Lengi má böl bæta með því að benda á annað en þessi hluti jarðkringlunnar er búinn að kalla þetta yfir sig, með hjálp.

Sindri Karl Sigurðsson, 19.11.2023 kl. 10:54

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Vandamálið þarna að það er ekki hægt að uppræta Hamas. Allir eiga einhverra harma að hefna og börn sem alast upp í slíku andrúmslofti verða að endingu þátttakendur. Og hver vill drepa öll börnin?

Ragnhildur Kolka, 19.11.2023 kl. 12:29

3 Smámynd: Loncexter

Vandamálið byrjaði fyrir um 2000 árum síðan. Maðurinn með friðinn, var illa liðinn og drepinn. 

Það væri friður í ísrael enn í dag, hefðu menn dæmt öðruvísi held ég.

Loncexter, 19.11.2023 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband