Gulla-skýrslan: það gæti kólnað, hækkum samt skatta

Í skýrslu Guðlaugs Þórs umhverfisráðherra segir meira muni hlýna norðan lands en sunnan og sums staðar kólni. Orðrétt

Niðurstöður líkanreikninga benda til þess að hlýnun verði meiri norðan við landið en sunnan við það. Í mörgum líkönum gætir tímabundinnar, staðbundinnar kólnunar.

Segja sem sagt líkönin í fleirtölu. Hér væri réttara að segja: margar ágiskanir eru um veðurfar framtíðar, það gæti hlýnað en líka kólnað. 

Líkan gefur útkomu samkvæmt forsendum líkanasmiðsins. Líkön í höndum áhugamanna um hlýnun af mannavöldum sýnir niðurstöðu sem fyrirfram er ákveðin. En jafnvel hörðustu hamfarasinnar hafa orðið að éta ofan í sig fyrri orð um heimsbyggðin stikni á næstunni sakir útblásturs mannsins á koltvísýringi, CO2. Það getur líka kólnað. Vísindin vita það ekki. Löngu fyrir daga vísinda var vitað að veður er breytilegt.

Í raun ætti yfirskriftin á skýrslunni að vera: Loftslag breytist frá einum tíma til annars.

Norska hagstofan birti rannsóknaskýrslu nýlega um áhrif manngerðs koltvísýrings á loftslag jarðar. Þar segir að líkön geti ekki greint á milli náttúrulegra hitabreytinga og meintra áhrifa mannsins á loftslag jarðarinnar síðustu 150 árin. Lokaorðin eru eftirfarandi:

niðurstöður gefa til kynna að áhrif af manngerðum koltvísýringi séu ekki nægilega sterk til að valda kerfisbundnum breytingum á hita. Með öðrum orðum, greining okkar sýnir að með núverandi þekkingu er ómöguleg að segja til hve hátt hlutfall hitahækkunar sé af völdum CO2-útblásturs.

Í Gulla-skýrslunni er oft og mörgum sinnum kvartað undan of litlu fé í þetta og hitt til að skilja að veðurfar breytist frá einum tíma til annars.

Aukið skattfé til rannsókna á þekktu ástandi, að veðurfar breytist, er sóun á almannafé. Guðlaugur Þór ætti ekki að tala fyrir hækkun skatta á almenning til að moka í botnlausa hít sem engu skilar.

 

 


mbl.is Sláandi en ekki óvæntar niðurstöður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Gulli er kommúnisti. Kommúistar hafa iðulega sagt svart hvítt. Grein eftir Óla Björn þar sem við eigum að þakka fyrir allar skattalækkanirnar hjá Bjarna Ben er gott dæmi um það.

Sjálfstæðisflokkurinn er í haldi kommúnista sem þykjast vera hægri. Það eru bara kommúnistar í framboði nema hugsanlega Sigmundur Davíð sem einn síns liðs kom í veg fyrir að þessi þjóð hefði orðið að skuldaþrælum.

Kristinn Bjarnason, 19.10.2023 kl. 09:50

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Það er líka mikil þversögn í því
að þeir sem mest eru á móti virkjunum
eru þeir sem vilja meiri rannsóknir á hugsanlegri loftslagsvá
og vilja snarhækka álögur á almenning með "grænum" sköttum

Grímur Kjartansson, 19.10.2023 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband