Miðvikudagur, 18. október 2023
Kona barnaði karl
Kona barnaði karl, sem gekk með fóstrið í 24 mánuði. Er nýburinn kom í heiminn var hann miðaldra hvítur karlmaður. Við ljósmóðurina segir miðaldra barnið:
Ég lít kannski út eins og miðaldra hvítur karl. Í reynd er ég þeldökk kona á óræðum þrítugsaldri. Vinsamlega skráðu mig rétt í fæðingardagbókina. Gemmér svo eitthvað að drekka og hafðu það áfengt. Ég á erfitt líf fyrir höndum verandi getin af konu og fædd af karli og mér er vorkunn. Kallaðu svo í blaðamann. Á eftir vímu er sýnileiki það brýnasta í lífinu. Spegill opinberrar umræðu gerir ímyndun mína trúverðuga.
Ljósmóðirin reiddi óðara fram tvöfaldan vodka í kók handa nýburanum og samsinnti að fjölmiðlar væru bráðnauðsynleg skolpveita ósanninda. Lífið væri hvort eð er áfeng lygi.
Athugasemdir
Góður!
Kveðja að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 18.10.2023 kl. 06:47
Algjör snilld.
Sigurður Kristján Hjaltested, 18.10.2023 kl. 12:40
Ja hérna hér!!
Sigurður I B Guðmundsson, 18.10.2023 kl. 12:45
Það sem fólk gerir til að vekja á sér athygli.
Ragnhildur Kolka, 18.10.2023 kl. 13:09
hun / hann ömmubarn ELISABETAR jÖKULS ,SALD ALLT I KRINGUM HANN HANA
rhansen, 18.10.2023 kl. 19:01
.....Og gat ekki um hvað það væri þungt. Takk fyrir Páll að toppa fréttatíma Rúv.
Helga Kristjánsdóttir, 18.10.2023 kl. 22:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.