Heimsslit, Ísrael og Úkraína

Ótti við kjarnorkustríð gerði vart við sig er tvísýnt var um framgang sléttustríðsins í Garðaríki. Sagt var að Pútín forseti Rússlands kynni að beita kjarnorkuvopnum færi hann halloka í Úkraínu. Vestrið tók slaginn engu að síður. 

Eftir fjöldamorð Hamas á gyðingum og svar Ísraelshers var ekki rætt um heimsslit. Áhyggjur beindust norðurlandamærum Ísraels, hvort skjólstæðingar klerkanna í Íran kynnu að opna nýja víglínu. En almennt var ekki talað annað en að um staðbundin átök yrði að ræða með tilheyrandi hörmungum þeirra sem í hlut eiga en litla hættu á kjarnorkubáli.

Eftir árás Hamas á Ísrael hvarf Úkraína af dagskrá fjölmiðla. Sléttustríðið varð að héraðsríg slavneskra frændþjóða.

Á meðan Úkraína var til umræðu stóð vestrið nokkuð einhuga að baki stjórn Selenskí í Kænugarði. Litlar fréttir voru af vestrænum kröfum, hvort heldur frá valdamönnum eða almenningi, um að saminn yrði friður. Einhugur um að láta Úkraínu blæða út til að skaða Pútín.

Öðru máli gegnir um afstöðuna til Ísrael. Þar gildir að þorri ráðamanna á vesturlöndum fordæmir Hamas. En víða, t.d. í henni Reykjavík, má heyra af samkomum, mótmælum, til stuðnings málstað Palestínumanna sem túlkaður er a.m.k. sem óbeinn stuðningur við fjöldamorð Hamas ef ekki fullur stuðningur.

Meginstuðningurinn við Palestínumenn og Hamas í vestrinu er frá vinstrimönnum. Meðal vinstrimanna, ekki allra en stórum hópum þeirra, er litið svo á að Ísrael eigi sér tæpast tilverurétt.

Samkvæmt forskrift meginstraumsfjölmiðla stendur Úkraínustríðið um tilvistar- og sjálfsákvörðunarrétt úkraínsku þjóðarinnar. Ráðandi frásögn sem fáir andmæla. En aftur telja stórir hópar, einkum vinstrimenn, að vafi leiki á tilvistarrétti Ísrael. Raunar ganga sumir skrefinu lengra og taka undir með Hamas: Ísrael skal afmá af landakortinu.

Fyrir Úkraínu má stefna heimsfriðnum í hættu. En fyrir Ísrael skal ekki gera meira en að þjóð gyðinga rétt tóri, ef það. Ísrael er örríki í samanburði við Úkraínu. Ef Úkraínuher myndi leggja niður vopn á morgun þyrftu landsmenn varla að óttast skipulagðar ofsóknir Rússa. Ef Ísraelsher legði niður vopn á morgun stæðu gyðingar frammi fyrir útrýmingu.

Samhygðin er töluvert meiri með slavneskri þjóð en gyðingaþjóðinni. Þeir sem skipta ójafnt manngæskunni telja sig undantekningalaust til mannvina.

Hún er kyndug mennskan á vesturlöndum. Einkum vinstrimennskan.


mbl.is Frelsishetja eins hryðjuverkamaður annars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

9 Hvað þá? Höfum vér þá nokkuð fram yfir?

Nei, alls ekki.

Vér höfum áður gefið bæði Gyðingum og Grikkjum að sök, að þeir væru allir undir synd.

10 Eins og ritað er: Ekki er neinn réttlátur, ekki einn. 11 Ekki er neinn vitur, ekki neinn sem leitar Guðs. 12 Allir eru þeir fallnir frá, allir saman ófærir orðnir.

Ekki er neinn sem auðsýnir gæsku, ekki einn einasti.

13 Opin gröf er barki þeirra, með tungum sínum draga þeir á tálar. Höggorma eitur er innan vara þeirra, 14 munnur þeirra er fullur bölvunar og beiskju.

15 Hvatir eru þeir í spori að úthella blóði. 16 Tortíming og eymd er í slóð þeirra, 17 og veg friðarins þekkja þeir ekki. 1

8 Fyrir augum þeirra er enginn guðsótti. Róm. 3. 

Guðmundur Örn Ragnarsson, 17.10.2023 kl. 11:48

2 Smámynd: Hörður Þormar

Ef Ísraelsríki verður þurrkað út af kortinu má búast við flóttamönnum Gyðinga í tugþúsundatali til Íslands. Auðvitað ber okkur að taka við þeim opnum örmum.

Hörður Þormar, 17.10.2023 kl. 13:31

3 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

23 Og ég mun skipa yfir þá einkahirði, hann mun halda þeim til haga, þjón minn Davíð (Jesú). Hann mun halda þeim til haga og hann mun vera þeim hirðir.

24 Og ég Jehóva, mun vera Guð þeirra, og þjónn minn Davíð mun vera höfðingi meðal þeirra.

Ég, Jehóva, hefi talað það.

25 Og ég mun gjöra friðarsáttmála við þá og reka öll illdýri úr landinu, svo að þeir skulu óhultir búa mega í eyðimörkinni og sofa í skógunum.

26 Og ég mun gjöra þá og landið umhverfis hæð mína að blessun, og ég mun láta steypiregnið niður falla á sínum tíma, það skulu verða blessunarskúrir.

27 Og tré merkurinnar munu bera sinn ávöxt, og jörðin mun bera sinn gróða, og þeir munu búa óhultir á sinni jörð og viðurkenna, að ég er Jehóva, þegar ég sundurbrýt oktré þeirra og frelsa þá undan valdi þeirra, er þá hafa þrælkað.

28 Og þeir skulu ekki framar verða þjóðunum að herfangi, né heldur skulu villidýrin rífa þá í sig, en þeir skulu búa óhultir og enginn skelfa þá.

29 Og ég mun láta til verða handa þeim vel ræktaðan gróðurreit og alls engir munu framar farast af hungri í landinu, og þeir skulu ekki framar liggja undir ámæli þjóðanna.

30 Og þeir skulu viðurkenna, að ég, Jehóva, Guð þeirra, er með þeim, og að þeir, Ísraelsmenn, eru mín þjóð, segir Jehóva Guð.

31 En þér eruð mínir sauðir. Mín gæsluhjörð eruð þér. Ég er yðar Guð, segir Jehóva Guð. Esek. 34.

Guðmundur Örn Ragnarsson, 17.10.2023 kl. 15:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband