Viðbrögð við gyðingahatri á Íslandi

Fróðlegt verður að sjá viðbrögð íslenskra stjórnvalda við staðfestum dæmum um gyðingahatur hér á landi. Bæði forsætisráðuneytið og ráðhús Reykjavíkur reka sérstakar mannréttindaskrifstofur er gagngert hafa það hlutverk að fjalla um hatur og mismunun gagnvart minnihlutahópum.

Um 200 gyðingar munu vera hér á landi. Eftirfarandi er haft eftir Finni Thorlacius Eiríkssyni talsmanni menningarfélags gyðinga.

Hatursorðræða gegn gyðingum er svolítið stikkfrí. Fólk sem berst gegn hatursorðræðu þegir oft þegar það verður vitni að hatursorðræðu gegn gyðingum

Má ekki búast við Katrín forsætis og Dagur borgarstjóri láti til sín taka og virkja mannréttindadeildirnar til að álykta og efna til funda um gyðingaandúð? Verða ekki fluttir inn fyrirlesarar til að setja elsta og ofstækisfyllsta hatur á minnihlutahópi í sögulegt samhengi?

Líklega ekki.

Stórir hópar frjálslyndra vinstrimanna á vesturlöndum styðja hryðjuverk Hamas og íslamista. Fléttast þar saman rómantík frjálslyndra vinstrimann gagnvart skæruliðum og ofbeldismenningu annars vegar og hins vegar gyðingaandúð.

Meintir íslenskir sérfræðingar í hatursorðræðu sjá í gegnum fingur sér er hatrið beinist að hópum sem þeir sjálfir hafa ímugust á. Öll hugmyndafræðin í kringum hatursorðræðuna snýst einmitt um að virkja hatur í þágu pólitískra markmiða.


mbl.is Gyðingaandúð vandamál á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Eggertsson

Smá athugasemd:  Þessi meinta gyðingasandúð er ekki til á Íslandi.  Það er bara skáldskapur.  Við erum friðarsinnar, Íslendingar og hötumst ekki út í Rússa, Gyðingar, Palestínumenn eða nokkurn þann sem hér býr þrátt fyrir mannréttindabrot ríkisstjórna eða hersveita í heimalandi þeirra.  Það breytir þó ekki því að Hamasamtökin eru hryðjuverkasamtök og Ísraelar fjölamorðingjar eftir elflaugaárásir á börn og saklaust fólk á Gasasvæðinu.

Allar vangaveltur um Gyðingaandúð eru uppspuni.  En þeir eru ekki hafnir yfir gagnrýni.

Kjartan Eggertsson, 16.10.2023 kl. 12:21

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Það er verið að senda hingað fullt af múslimum.  Þeir eru gyðingahatarar af eðlisfari.  Það stendur í Kóraninum að svo skuli vera.  Flettu því bara upp.

Þar er vandamálið.

Ásgrímur Hartmannsson, 16.10.2023 kl. 13:53

3 Smámynd: Hörður Þormar

Hér er 7 ára gamalt viðtal við arabískan sálfræðing sem er fæddur og uppalinn í Ísrael, en býr nú í Þýskalandi. Þar lýsir hann æsku sinni og uppeldi. Einnig lýsir hann þankagangi hins venjulega múslima, feðraveldinu og viðhorfinu til kvenna og kynferðismála. Og síðast en ekki síst vandamálum múslima í Evrópu.  Viðtalið er klst.langt og á Þýsku en nálgast má tölvuþýðingar. Það er fyrirhafnarinnar virði að sjá þetta viðtal.                          Ahmad Mansour – Psychologe (01.02.2016 Vis A Vis)           

Hörður Þormar, 16.10.2023 kl. 15:32

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Það er ekki til gyðingahatur á Íslandi og hefur aldrei verið.

Guðjón E. Hreinberg, 16.10.2023 kl. 15:41

5 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Sammála að hvorki finnst gyðingahatur hér á landi né annað hatur sem orð er á gerandi. Tal um hatursorðræðu er að jafnaði pólitískt upphlaup. Bloggið var skrifað til að vekja athygli á þeir sem fjálglega nota hugtakið beita því valkvætt.

Páll Vilhjálmsson, 16.10.2023 kl. 15:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband