Mánudagur, 3. júlí 2023
Laupur og lyga í stað afa og ömmu
Samtökin 78 óska eftir nýyrðum yfir föður- og móðurforeldra sem fyrrum nefndust amma og afi. Ein tillaga er að amma verði lyga og afi laupur.
Maður segði si svona ´ég ætla að skreppa í kleinur og kaffi hjá lygu´. Og ´laupur, lestu fyrir mig sögu´.
Hinsegin hugmyndafræðin boðar kynjaflæði. Maður getur verið karl að morgni en kerla að kveldi. Um miðjan daginn eitthvað þess á milli. Gera má ráð fyrir að ömmur/lygur vilji stundum vera afar/laupar og öfugt. Nýyrðin tvö gera ráð fyrir þessum möguleika. Þeim er einfaldlega slegið saman í eitt samsett orð.
Lygalaupur.
Leita að kynhlutlausu amma og afi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Og allir flokkarnir á alþingi virðist tralla / kóa með öllum þessum
kynja-rugls-vitleysisgangi;
nema kannski MIÐFLOKKURINN.
Ættum við þá ekki öll að flykkja okkur um hann?
Jón Þórhallsson, 3.7.2023 kl. 10:08
Það hefur ekki komið fram í fréttum að þarna er verið að hafa áhrif á málfar ungra barna. Það eru náttúrulega aðallega barnabörnin sem eru að nota orðin afi og amma. Þetta leiðir af sér að börnum sé bent á að hætta að nota orðið afi/amma og eigi að fara að nota nýyrðið. Barnið mun náttúrulega spyrja hvers vegna sem þá opnar umræðu sem ung börn ættu ekki að þurfa að taka þátt í.
Einar, 3.7.2023 kl. 10:30
Það er greinilega komin þörf fyrir KRISTILEGAN FLOKK á íslandi með hann
Snorra í Betel í fararbroddi sem að boðar bara TVO KYN.
Jón Þórhallsson, 3.7.2023 kl. 10:32
Það skal tekið fram að þó að ég sé með forsíðu bókarinnar
INNSÝN Í MANNLEGA TILVERU í mínum blogg-haus
þar sem er að finna appelsínugulan þríhyrning;
að þá er það ekki tilvísun í stuðning með fána samkynhneigða.
Heldur er það INNIHALD þeirrar bókar sem að ég er að koma á framfæri
og endurspeglar minn hugarheim. (Þó að það sé nú önnur saga).
Jón Þórhallsson, 3.7.2023 kl. 10:51
Þetta er liður í afmennskun fólks.
Helgi Viðar Hilmarsson, 3.7.2023 kl. 11:20
Er það ekki bara New World Order
sem að er á bak við alla þessa gaypride-vitleysu?
= Á endanum verður lífið á jörðinni eins í þáttaröðinni
HUNGER GAMES sem að er ný-búið að sýna í rúv-sjónvarpi.
Þar hét samfélagið Capital og það samanstóð af gaypride-göngu-fólki
og þau höfðu náð heimsyfirráðunum,
þau náðu alþingishúsinu, háskólanum og sennilega 78% af fjölmiðlunum:
https://www.youtube.com/watch?v=_-Gj8iTmekU
Jón Þórhallsson, 3.7.2023 kl. 12:15
Hérna getið þið svo séð THE NEW WORLD ORDER raunveruleikans á mínútu 1:15:40:
https://www.youtube.com/watch?v=mKoLlwZNeWk
Jón Þórhallsson, 3.7.2023 kl. 12:20
Hlustið á Meloni á Ítalíu, sem S78 og góða fólkið kallar fasista:
Ég er móðir, ég er kona, kaþólikki, Ítali...og enginn getur tekið það frá mér:
https://www.youtube.com/watch?v=FEovvFeyWis
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 3.7.2023 kl. 15:22
Svo er reynt mjög skipulega að stjórna umræðunni um þessa hugmyndasamkeppni
með því að krefjast þess að fréttamenn ræði einungis við "sérfæðinga"
Grímur Kjartansson, 4.7.2023 kl. 08:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.