Siðareglur miskunnarlausra blaðamanna

Eiginkona Páls skipstjóra Steingrímssonar var andlega veik þegar blaðamenn RSK-miðla (RÚV og Heimildin, áður Stundin/Kjarninn) efndu til samstarfs við hana vorið 2021. Samstarfið fól í sér að gera skipstjórann óvígan, stela síma hans og færa blaðamönnum til afritunar.

Um leið og blaðamenn tók upp samstarf við veiku konuna urðu þeir hjónadjöflar. Þeir beinlínis etja saman hjónafólki, þar sem annað hjónanna veit ekki sitt rjúkandi ráð vegna andlegra báginda.   

Páll skipstjóri var í viðtali hjá Frosta Logasyni um reynslu sína af misþyrmingu blaðamanna á þáverandi eiginkonu sinni.

Einu sinni voru siðareglur sem tóku vara á að óvandaðir blaðamenn nýttu sér bágindi fólks.

Þriðja grein siðareglna Blaðamannafélags Íslands hljómaði til skamms tíma svona:

Blaðamaður vandar upplýsingaöflun sína, úrvinnslu og framsetningu svo sem kostur er og sýnir fyllstu tillitssemi í vandasömum málum. Hann forðast allt, sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu.

Um svipað leiti og RSK-blaðamenn tóku til við að misnota alvarlega veikan einstakling var settur kraftur í að breyta siðareglum blaðamanna. Endurskoðaðar siðareglur litu dagsins ljós í vor. Búið er að fella út innihald þriðju greinarinnar um að ,,forðast allt, sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu."

Varaformaður Blaðamannafélags Íslands, Aðalsteinn Kjartansson, á Heimildinni, áður RÚV, var í forystu nefndarinnar sem endurskoðaði siðareglunar. Aðalsteinn er sakborningur í yfirstandandi lögreglurannsókn á byrlun Páls skipstjóra og stuldi á síma hans. Aðrir sakborningar eru Þórður Snær Júlíusson, Arnar Þór Ingólfsson, Ingi Freyr Vilhjálmsson, allir á Heimildinni, og Þóra Arnórsdóttir sem var ritstjóri Kveiks á RÚV.

Allt eru þetta verðlaunablaðmenn Blaðamannafélags Íslands. Fagstétt sem verðlaunar miskunnarleysi lýsir yfir stríði gegn grunngildum samfélagsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: rhansen

"FAGSTETT" getur tæpast notað ser slikan Siðferðisbrest til að halda halda nafngiftinni , "verðlaunablaðamenn" ? !

rhansen, 12.6.2023 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband