Laugardagur, 15. apríl 2023
Áfengi og rétttrúnaður
Sigurinn liggur í uppgjöfinni er bók um alkahólisma. Höfundar eru hjónin Sigurlína Davíðsdóttir og Ragnar Ingi Aðalsteinsson. Í viðtali er haft eftir Sigurlínu
Fyrsta skrefið er að átta sig á því að þær leiðir sem maður hefur farið í neyslunni eru ónýtar og maður þarf að leggja þær alveg til hliðar og taka upp alveg nýja nálgun. Þeim sem ekki tekst þetta tekst ekki að verða edrú.
Áfengi í óhófi leiðir einstaklinga í öngstræti. Neyslan gerir menn ,,ónýta". Tveir harðir kostir, sem báðir fela í sér uppgjöf, standa eftir. Uppgjöf gagnvart sjálfum sér eða gefa áfengið upp á bátinn.
Rétttrúnaður er með þau áfengu einkenni að annað tveggja gefst maður upp á sjálfum sér eða lætur rétthugsun lönd og leið. Rétttrúnaður og hjarðhugsun haldast í hendur. Hvergi er sést samhengið betur en í háskólasamfélaginu. Helgi Ás Grétarsson útskýrir
Það er að verða mjög skrýtin þróun í háskólunum. Pólitísk rétthugsun hefur náð miklum tökum á háskólasamfélaginu. Ákveðinn hópur hefur náð að ákveða hvað má tala um og hvað ekki. Oft er komið í veg fyrir að það sé verið að ræða efnisatriði mála og draga þannig úr sköpun. Það má ræða mjög neikvætt um suma málaflokka og sumt fólk, en ef það væri í hina áttina yrði fólk bara grillað á teini.
Rétttrúnaðurinn krefst undirgefni líkt og áfengi. Valið stendur á milli frjálsrar hugsunar og auðsveipni hjarðarinnar. Helgi Áss aftur
maður verður stundum að þora að vera hugrakkur og standa með eigin sannfæringu, þó að það kosti að einhverjir verði brjálaðir og segi eitthvað neikvætt um mann. Ef maður er alltaf tilbúinn að gefa eftir eitthvað af sínum karakter til að lífið sé þægilegra, þá molnar hægt og sígandi undan skapgerðinni og maður verður hægt og rólega að gufu sem stendur ekki fyrir neitt
Þægilegt líf í hjörðinni sem telur manni trú um að hvítt sé svart, að loftslagið sé manngert og hægt sé að fæðast í röngum líkama. Nei, takk, betra er að vera edrú á rétthugsun og taka á sig óþægindin að hugsa sjálfstætt.
Leyndarmálin fara með þig í gröfina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Vel sagt og svo sammála.
Sigurður Kristján Hjaltested, 15.4.2023 kl. 10:01
Mér veitir ekki af að lesa þessi orð og ekki síst þriðju tilvitnunina frá Helga Áss. Meira en lesa, taka hana til mín. Minnihlutahópur virðist á góðri leið með að yfirtaka skólakerfið frá leikskóla upp í háskóla. Slæmt þróun.
Helga Dögg Sverrisdóttir, 15.4.2023 kl. 10:21
Fín hjón og Helgi Áss er auðvitað einn af mínum uppáhalds stjórnmálamönnum (og skákmönnum). Áfram Helgi og þau hin!
Snorri Bergz, 15.4.2023 kl. 13:43
Venju samkvæmt, málefnalegur pistill og svo vitnað sé í orð Helga Áss, þá er grillun Helgu Daggar hafin, rétt eins og lesa má í nýrri yfirlýsingu Kennrasambandssins.
Jónatan Karlsson, 15.4.2023 kl. 14:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.