Miðvikudagur, 22. mars 2023
Þóra ráðleggur byrlara
Páli skipstjóra Steingrímssyni var byrlað 3. maí 2021. Á meðan hann lá meðvitundarlaus á gjörgæslu var síma hans stolið og farið með hann á RÚV þar sem afrit var tekið. Afritaði síminn fékk númerið 680 2140. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri staðfestir að Þóra Arnórsdóttir yfirmaður Kveiks á RÚV hafi verið með símann í sínum fórum.
Páll skipstjóri kærði málið 16.maí og lögreglan hóf rannsókn. Meðal þeirra gagna sem lögreglan hefur aflað eru símtöl 24. ágúst 2021. Blaðamenn RSK-miðla (RÚV, Stundin og Kjarninn) fengu veður af lögreglurannsókninni og höfðu áhyggjur af framvindu mála.
Blaðamennirnir voru vel meðvitaðir um að hafa framið alvarlegt lögbrot og kappkostuðu að eyða sönnunargögnum.
Þóra var 24. ágúst samtals átta sinnum í sambandi við konuna sem verður ákærð fyrir að byrla Páli, stela síma hans og færa blaðamönnum til afritunar. Konan stríðir við alvarleg andleg veikindi.
Þóra leggur til við konuna að ,,breyta ÖLLUM lykilorðum alls staðar."
En það er ekki nóg. Þóra vill að konan láti af hendi sinn eigin síma til að hægt sé að afmá upplýsingar. Hún skrifar
Hann vill helst ekki hittast (mjög varkár maður, skiljanlega) en spyr hvort þú treystir honum fyrir símanum einn dag?
Ekki er upplýst hver sá varkári er. Hann gæti hafa verið annar blaðamaður. Auk Þóru eru fjórir aðrir blaðamenn sakborningar.
Blaðamenn áttuðu sig á að konan sem byrlaði er með tvo síma. Þeir lögðu að henni að gefa frá sér símkortin til að hægt væri að eyða gögnum. Tölvupóstur skrifaður 3. október 2021 ber það með sér.
Viðtakendur eru Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur, Þóra Arnórsdóttir, Aðalsteinn Kjartansson og Ingi Freyr Vilhjálmsson, þá blaðamenn Stundarinnar en nú Heimildarinnar. Báðir eru þeir sakborningar. Texti tölvupóstsins er eftirfarandi:
Sæl Lára.
Ég gef hér með Þóru Arnórsdóttur og Aðalsteini Kjartanssyni umboð til að ná í símkortin mín til þín ef þau óska eftir því að fá þau í hendur ásamt öðru efni sem þú kannt að hafa frá mér
Lára var lögfræðingur veiku konunnar. Hún virðist hafa verið milligöngumaður byrlara og blaðamanna.
Fólk við hestaheilsu lætur ekki síma og símkort sín af hendi. Blaðamenn RSK-miðla nýttu sér yfirburða stöðu sína og virðast hafa haft öll ráð veiku konunnar í hendi sér.
Athugasemdir
19/1940: Almenn hegningarlög
Hver sá, sem tekið hefur ákvörðun um að vinna verk, sem refsing er lögð við í ... [Hver sem tekur við, nýtir eða aflar sér eða öðrum ávinnings af broti á ...
Grímur Kjartansson, 22.3.2023 kl. 10:22
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/03/22/rannsokn_a_inga_frey_vidtaekari/
Guðmundur Böðvarsson, 22.3.2023 kl. 12:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.