Fimmtudagur, 2. mars 2023
Aftenposten biðst afsökunar á RSK-miðlum
Innsikt, tímarit norska stórblaðsins Aftenposten, biðst afsökunar á lélegri blaðamennsku og fjölmörgum staðreyndavillum í fréttagrein sem skrifuð var í þágu íslenskra blaðamann RSK-miðla (RÚV, Stundarinnar og Kjarnans - nú Heimildin).
RSK-miðlar fengu danskan blaðamann, Lasse Skytt, sem einnig auglýsir sig sem almannatengil, til að skrifa fréttasamantekt um Namibíumálið og rannsókn lögreglu á aðild blaðamanna að byrlun Páls Steingrímssonar skipstjóra Samherja. Skytt fékk greinina birta í febrúarútgáfu Innsikt.
Skytt skrifaði styttri útgáfu af greininni og fékk hana birta í dönsku fagriti blaðamanna. Tilfallandi athugasemd fjallaði um vinnubrögð RSK-miðla við að kaupa sér frægð í útlöndum á fölskum forsendum.
Í marsútgáfu Innsikt er löng afsökunarbeiðni þar sem raktar eru margar villur og rangtúlkanir í grein Skytt. Íslensku blaðamennirnir útveguðu Skytt aðgang að Jóhannesi Stefánssyni, svokölluðum uppljóstrara. Jóhannes talar aðeins við þá blaðamenn sem gleypa frásögn hans hráa og fjalla ekki um hve vafasöm heimild uppljóstrarinn er.
Í afsökunarbeiðni Innsikt er tekið fram að útgáfan hafi ekki séð neinar trúverðugar heimildir um að Jóhannes hafi fyrir hönd Samherja mútað embættismönnum í Namibíu. ,,Það hefði átt að koma fram í greininni," segir Innsikt, ,,að Jóhannes er einn til frásagnar um að hafa stundað mútur."
Skytt hafði ekki samband við Samherja þegar hann undirbjó greinina. Enda var Skytt í vinnu hjá RSK-miðlum til að ófrægja Samherja. Aldrei stóð til sjónarmið annarra en RSK-miðla kæmust á framfæri. Afsökunarbeiðni Innsikt segir: ,,Verkferlar hjá okkur brugðust. Grunnatriði blaðamennsku er að ásakanir séu bornar undir þá sem þær beinast að. Það var ekki gert í þessu tilviki."
Innsikt biðst einnig afsökunar á að í grein Skytt séu yfirheyrslur lögreglu yfir blaðamönnum tengd Namibíumálinu. Umfjöllun um skýrslutöku lögreglu af blaðamönnum átti ekki heima í umfjöllun um Namibíumálið, segir í yfirlýsingu Innsikt. Blaðamennirnir eiga aðild að byrlun, gagnastuldi og brot á friðhelgi. Það er sjálfstætt mál kennt við Pál skipstjóra.
Í Noregi eru grunnatriði blaðamennsku virt. Á Íslandi er enginn munur á almannatengslum og blaðamennsku. RÚV, Stundin og Kjarninn (nú Heimildin) stunda málflutning, ekki fréttaflutning.
Það verður í minnum haft að Aftenposten biðst afsökunar á íslenskri blaðamennsku.
Athugasemdir
Ljós í myrkri.
Ragnhildur Kolka, 2.3.2023 kl. 08:21
Ef ég opna marsútgáfu Innsikt finn ég ekki afsökunarbeiðni blaðsins. Annað hvort vantar greinina eða ég er ólæs.
Pétur Arnar Pétursson, 2.3.2023 kl. 11:29
Greinin er í prentútgáfunni.
Páll Vilhjálmsson, 2.3.2023 kl. 12:31
Bls. 13
Páll Vilhjálmsson, 2.3.2023 kl. 12:34
Sjá einnig : https://www.mbl.is/200milur/frettir/2023/03/02/bidjast_afsokunar_a_rangfaerslum_um_samherjamalid/
Hólmgeir Guðmundsson, 2.3.2023 kl. 15:23
Jóhannes Stefánsson virðist ekki áreiðanlegur heimildarmaður ;)
Heimir Lárusson Fjeldsted, 2.3.2023 kl. 17:40
Seint mun verða sagt frá þessari afsökunarbeiðni í Útvarpi allra Landsmanna
Þeirri útvarpsstöð sem allir skattgreiðendur neyðast til að fjármagna ríkulega
Grímur Kjartansson, 2.3.2023 kl. 18:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.