Laugardagur, 23. júlí 2022
Slaufun að kröfu Andra Snæs
Heimurinn brennur og ritstjórn Morgunblaðsins á að leggja niður störf þegar Staksteinar birta tilfallandi gagnrýni á heimsendaspár vegna loftslags af mannavöldum. Á þessa leið er málflutningur Andra Snæs Magnasonar rithöfundar á Fjölmiðlanördum á Facebook. Stundin endurómar.
Tilefnið er blogg þar sem vitnað er í tvo íslenska veðurfræðinga, bandarískan loftslagsvísindamann, auk annarra heimilda, og dregnar ályktanir sem eru Andra Snæ ekki að skapi.
Fyrir þrem árum krafðist Andri Snær þöggunar gagnrýnisradda á manngert loftslag. Síðan hefur slaufunarmenningin vaxið og dafnað. Nú er tímabært að krefjast að starfsfólk fjölmiðla leggi niður störf ef svo ber við að vitnað er í aðra en handhafa rétttrúnaðarins.
Menn eins og Andri Snær eru óvinir frjáls samfélags viti borinna manna. Í menningargúlagi Andra Snæs er aðeins ein skoðun leyfð og rökræður bannaðar.
Árið 2019, sama ár og hann heimtaði þöggun, var Andri Snær í fréttum vegna andlátsfregnar sem hann samdi um jökulinn Ok er rithöfundurinn sagði vera að hverfa vegna manngerðs veðurfars. Andri Snær fíflaði Katrínu forsætis með sér í pílagrímsför á hálendið með minningarskjöld. En jökullinn hvarf 59 árum áður, eins og rifjað var upp í tilfallandi athugasemd. Náttúran hafði framið glæpinn fyrir tveim kynslóðum en Andra Snæ var í mun að kenna núlifandi Íslendingum um voðaverkið.
Ofstæki kjána er öðrum þræði skoplegt en hinum þræðinum sorglegur vitnisburður um menningarástand.
Athugasemdir
Þær gefa manni oft í morgunsárið örlitla vonarglætu inn í svartnætti tíðarandans, þessar beittu laglegu færslur og ábendingar þínar á menn og málefni svona á borð þetta ágæta dæmi dagsins og ekki spilla þær, trúfastar léttkryddaðar athugasemdirnar, því góða fólkið treystir sér líklega ekki inn á sviðið.
Jónatan Karlsson, 23.7.2022 kl. 10:15
Spenaliðið er hortugt ,og greinilega ofalið !
rhansen, 23.7.2022 kl. 13:45
,,Andri Snær fíflaði Katrínu forsætis með sér í pílagrímsför á hálendið með minningarskjöld .."
Þau gætu eins sett upp minningarskjöld í Surtsey um ósnortna hafsvæðið sem hvarf þegar hún birtist.
Baldur Gunnarsson, 25.7.2022 kl. 12:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.