Þriðjudagur, 5. október 2021
Stígamótafasismi er valdafemínismi í praxís
Stígamótafasisminn skiptir mannfólkinu í þolendur og gerendur. Þolendur ákæra, sakborninga er að játa og taka út refsingu sem á þessu stigi málsins er útskúfun. Lesist: konur ákæra, karlar eru fyrirfram sekir.
Á seinni stigum gæti gamanið farið að kárna. Stígamótafasistar fengu inni hjá Sósíalistaflokki Íslands og boðuðu ofbeldissveitir ,,skipaða sjálfstæðu lögreglu- og ákæruvaldi" til að sjá um afgreiðslu þeirra ákærðu.
Valdafemínisma gengur allt í haginn þessi misserin. Um 70 prósent háskólanema eru konur, formleg völd streyma í stríðum straumi inn meyjarhaftið. Karlar eru óðum að verða húsverðir í kvennahöll. Skyldi ætla að hægja mætti á fasísku orðræðunni. En þar liggur hundurinn grafinn. Mikill vill meira.
,,Geð konunnar er yfirborð, úfin og ólgandi slikja á grunnu vatni," mælti Zaraþústra Nietzsche.
En hvað liggur í djúpinu?
Tekur afstöðu gegn þolendum og verður ekki saknað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Pepsi-deildin | Facebook
Athugasemdir
Þessi kona ætti að leita sér læknis. Ummæli hennar er sjúk. Ekki verður betur séð en að hún sé í herferð, þ.s. Engu er eirt. Orð hennar um Jóhann Berg benda til að allir sem ekki spila í hennar liði séu sekir um ófyrirgefanlega glæpi. Hún er nú þegar búin að rústa landsliðinu. Mórallinn í botni og félagarnir plokkaðir út ef þeir æmta. Landsliðið á að draga sig út úr keppni. Hvíla boltann. Með móralinn í ræsinu vinnur ekkert lið og áhorfendur eiga betra skilið.
Það sem undrar mig mest er þøgn áhorfendanna. I gegnum tíðina hefur þetta verið háværasti krøfuhópurinn. Nú láta þeir þetta yfir sig ganga af ótta við eiginkonurnar sem hafa tekið sóttin. Á meðan þeir þegja linnir þessum látum ekki.
Ragnhildur Kolka, 5.10.2021 kl. 09:40
Helga Dögg Sverrisdóttir kom inn á þetta mál á blogginu sínu og setti ég þar inn athugasemd. Núna er það þannig: Grunaðir sekir þar til sekt er afsönnuð.
Sigurður I B Guðmundsson, 5.10.2021 kl. 09:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.