Miðvikudagur, 17. mars 2021
Pútín og Trump, 2016 og 2020
Í forsetakosningunum 2016 var Pútín sagður hafa tryggt Trump sigur. Sú flökkusaga varð að almennum sannindum í meðferð fjölmiðla. Demókratar á þingi stóðu fyrir rannsókn og báru fyrir sig heimildir úr leyniþjónustunni. Allt reyndist haugalygi.
Í kosningunum 2020 er Pútín ,,talinn hafa verið" hliðhollur Trump en klerkastjórnin í Íran hlynnt Biden.
Ekki búast við herferð til að sannfæra almenning um að Biden sé smurður agent klerkastjórnarinnar í Tehran. Biden var jú frambjóðandi ráðandi fjölmiðla.
Telja Pútín hliðhollan Trump | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
það er nokkuð ljóst í munum huga að þessi andrúsneksi áróður er SKIPULAGT PLOTT á alla kanta og hluti fa hernaðar taktik, með því að hamdra á að Russar hafi gert hitt og þetta og ala koma þannig af stað andúð á Russum og jafnvel kínhverjum, en þvi miður þá eru margar sem að falla í þessa gryfju að spila með án nokkurar gagnrýnnar hugsunar. Lafarov utanríkis ráðherra Russa sagði orðrétt ,, að í hvert skipti sem að við byðjum ykkur að leggja eitthvað fram , að þá SKEÐUR EKKI NEITT. Það er bara áróðurinn og ekket annarð.
Margur heldur mig sig,
kv
LIG
Lárus Ingi Guðmundsson, 17.3.2021 kl. 09:06
Öll mótmæli í Rússlandi fá líka gífurlega umfjöllun í vestrænum fjölmiðlum. Pussy Riot urðu heimsfræg fyrir að pissa á gráturnar í kirkjunni og Navalny fyrir að verða veikur í flugvél. Ef ekki væri þessi gasleiðsla til Þýzkalands væri nú þegar búið að samþykkja refsiaðgerðir hjá ráherranefnd ESB gagnvart Rússum meðan stjórnin á Spáni fær bara klapp á bakið fyrir meðferðina á mótmælendum í Barcelona.
Grímur Kjartansson, 17.3.2021 kl. 10:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.