Mánudagur, 4. janúar 2021
Góða fólkið uppljóstrar og leggur í einelti
Sumir styðja sóttvarnir af þegnskap. Það er dygð af hraustu fólki á besta aldri óttalaust um Kínaveiru að leggja á sig sóttvarnir í þágu þeirra sem ekki eru við hestaheilsu eða ellihrumir.
Aðrir styðja sóttvarnarreglur til að sækja sér vopn að berja samborgara sína með. Góða fólkið er þar áberandi. Það telur í kirkjur, hnýsist í einkamál og fylgist með biðröðum gagngert til að úthrópa þá sem stíga feilspor.
Eftir afhjúpun tekur við einelti, jafnvel með stuðningi fjölmiðla.
Athugasemdir
Gæti höfundur útskýra hvað "Kínaveira" sé ?
Klára fólkið, líkt og höfundur og margir gestir hans eru orðnir svo mikilr sérfræðingar í sóttvörnum að við, pubullinn og hitt fólkið, náum ekki öllu tungutakinu sem klára fólkið, þar á meðal höfundur, slær sig með.
Sigfús Ómar Höskuldsson, 4.1.2021 kl. 17:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.