Mánudagur, 4. janúar 2021
Sígandi lukka er best í sóttvörn
Heilt yfir tókst Íslendingum vel sóttvörnin. Takmarkanir íþyngdu helst ungum og öldnum. Líkur standa til að þeir aldurshópar komist nær daglegu lífi fyrstu vikur ársins. Ferðaþjónustan varð fyrir mestum búsifjum atvinnugreina en aðstæður erlendis höfðu ekki síður áhrif þar en staðan innanlands.
Um áramótin berast þær fréttir að frændur okkar Norðmenn verða að grípa til róttækra samfélagslegra lokana til að stemma stigu við útbreiðslu Kínaveirunnar. Þá eru þjóðir sem þóttu framalega í sóttvörn um miðbik liðins árs, s.s. Japanir, með allt í hers höndum þessa dagana.
Bóluefni eru komin á markað en framleiðslan annar ekki eftirspurn. Prófanir á virkni fá skemmri skírn og þar með aukast líkur á að bóluefnin þjóni ekki tilgangi sínum og feli mögulega í sér slæmar aukaverkanir.
Hraðleiðin úr faraldrinum er ekki í boði. Að hætti forfeðra skulum við gera ráð fyrir að þreyja þorra og góu.
Telur bráðaleyfi koma til greina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"Prófanir á virkni fá skemmri skírn og þar með aukast líkur á að bóluefnin þjóni ekki tilgangi sínum og feli mögulega í sér slæmar aukaverkanir."
--------------------------------------------------------------------------------------
Það er einmitt það:
https://edcdeveloper.wordpress.com/2020/12/15/why-does-the-moderna-vaccine-contain-luciferin/?fbclid=IwAR2hLKF3bt0bIJMu9ItZJCXJSz5XLLJ9rtqBAvKAABeH_zJ-NIygA-q124g
----------------------------------------------------------------------------
https://www.youtube.com/watch?v=XW3H6PBkrbU&fbclid=IwAR39Em6hH4bD0azS1Pyih9qtH1qn6DgFX69JOxZlBopJz29_yM79NufM5E8
Jón Þórhallsson, 4.1.2021 kl. 10:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.