Mánudagur, 28. desember 2020
Bóluefnið og bræðurnir á Bakka
Þríeykið plús Svandís heilbrigðis taka á móti bóluefni fyrir fimm þúsund landsmenn. Minnir á söguna af Bakkabræðrum. Svandís pantaði ekki nóg, Þórólfur reddaði en Víðir veiktist.
Alma landlæknir er í hlutverki föðurins sem kallaði á kútinn. Ekki fyrir sjálfa sig heldur þjóðina.
Fremur lítið er í kútnum, rétt nóg fyrir eitt prósent þjóðarinnar.
Bóluefnið komið til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hver á að AXLA ÁBYRGÐINA ef að fólk fer að veikjast og deyja
vegna óæskilegra aukaverkana frá þessu bóluefna-eiturbrasi?
1.Forsætisráðherra íslands?
2.Heilbrigðisráðherrann?
3 Þríeykið?
4.Almenningur sjálfur fyrir að stökkva á vagninn?
5.Lyfjafyrirtækið (New Worl Order)?
Hlustum á fólkið með Dr.gráðurnar?
https://www.youtube.com/watch?v=XW3H6PBkrbU&fbclid=IwAR2MLJ2NYIBzTjXErRHlqAG_xiiwVVB0CvjAwEqS20TDm-oA0Bl-BQ5u1dA
Jón Þórhallsson, 28.12.2020 kl. 11:15
Jón Þórhallsson
Ég þekki marga í Bandaríkjunum sem hafa fengið þetta bóluefni og enginn finnur fyrir aukaverkunum né hafa orðnir veikir svo hættu þessu djöfulsins kjaftæði
Arnar Bergur Guðjónsson, 28.12.2020 kl. 11:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.