Mánudagur, 21. desember 2020
Ísland í ESB-klúðrinu (staðfest)
Evrópusambandið klúðraði skipulagi á bólusetningum vegna Kínaveirunnar, skrifaði Morgunblaðið fyrir tveim dögum og byggði á Der Spiegel:
Vegna seinagangs og rangra ákvarðana mun bólusetning ganga mun hægar fyrir sig í ríkjum Evrópusambandsins en gert var ráð fyrir og faraldurinn ráða lengur ríkjum en ella.
Nú staðfestir heilbrigðisráðuneyti Vinstri grænna að Ísland er í miðju klúðrinu.
Hvernig í veröldinni stendur á því að Ísland er hlekkjað við ónýtt ESB-kerfi? Hvað er að mannskapnum í stjórnarráðinu? Hvers vegna er bóluefni ekki keypt beint frá framleiðanda?
Ísland fái hlutfallslega sama magn bóluefna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekki á mínu borði frekar en Landakotshneykslið.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 21.12.2020 kl. 18:22
Haldið ykkur frá öllum bóluefnum og sýnatökum;
Án gríns; þetta eru aftöku-sprautur:
https://www.bitchute.com/video/7J2g60NC6KAJ/
Jón Þórhallsson, 21.12.2020 kl. 19:09
Legg til varúðarmerkingar á flugmiða til sambandsins. "Fjölmenning og fjórfrelsi drepa."
Jón Steinar Ragnarsson, 21.12.2020 kl. 19:41
Ég viðurkenni vel að ég trúi því ekki fyrr en ég fæ að sjá fyrstu íslendingana vera bólusetta. En á maður ekki að trúa á kraftaverk um jólin?
Grímur Kjartansson, 21.12.2020 kl. 21:01
Jú Grímur; Um jólin 2021 kannski. Því um það snýst þetta klúður Evrópusambandsins og EES-aftaníossa þess um.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 21.12.2020 kl. 21:13
Það tekur mörg ár að bólusetja Íslendinga miðað við afhendingarhraðann 3000 á viku. Því miður er okkur stjórnað af ekki klókara fólki.Horfið bara á Alþingi.
Halldór Jónsson, 21.12.2020 kl. 21:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.