Fleiri deyja á Biden vakt en Trump-tíma

Á líftíma Joe Biden hafa fleiri Bandaríkjamenn dáið en á allri ævi Trump.

Þetta er tölfræðileg staðreynd, óhrekjanleg í þokkabót. Biden er eldri en Trump.

,,Nýjar rannsóknir sýna..." að vísindin eru óðum að verða ómarktæk, enda sneisafull af bulli.


mbl.is Kosningafundir Trumps leiddu til 700 dauðsfalla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er allt reynt til að koma líkinu af Biden á forsetastól.

Þorsteinn Siglaugsson, 1.11.2020 kl. 14:49

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Nákvæmlega. Vísindin eru stöðugt að líkjast meira hræðsluvísindum miðalda og endurreisnarinnar, á tímum nornabrenna og hysteríu. Vísindamenn fá ekki starf ef þeir eru ekki viðurkenndir af elítunni sem gefur út réttu viðmiðin. Þar með hættir fólk að virða vísindin, þetta setur niður virðuleg valdakerfi. Samfélögin verða skiptari, sama þróun og hefur átt sér stað í Bandaríkjunum. Þetta er röng stefna, undir yfirskrift húmanisma. Eins og í Sovétríkjunum sálugu, vondir hlutir gerast þegar fólki er boðið eitthvað sem ekki stenzt og það trúir því eins og nýju neti.

Ingólfur Sigurðsson, 1.11.2020 kl. 14:55

3 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Hárrétt, Þorsteinn og Ingólfur.

Benedikt Halldórsson, 1.11.2020 kl. 15:02

4 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Það eru ekki bara vísindamenn sem lifa í stöðugum ótta að missa starfið.

Margir grínistar voru góðir í að fá fólk til að hlæja af allri vitleysunni. Ekkert var heilagt. Nú fær engin "grínisti" vinnu sem hefur húmor.

Benedikt Halldórsson, 1.11.2020 kl. 15:18

5 Smámynd: Jón Ragnarsson

250.000

Jón Ragnarsson, 1.11.2020 kl. 15:35

6 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Hvað yrði um þá vísindamenn sem kæmust að þeirri almennu niðurstöðu að ALLIR fjöldafundir breiða út veiruna. 

C1078.00_02_41_23.Still025

Benedikt Halldórsson, 1.11.2020 kl. 16:18

7 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Vísindi, sko:
https://image-cdn.parler.com/J/R/JRlD4pt62Y.jpeg

Ásgrímur Hartmannsson, 1.11.2020 kl. 16:32

8 Smámynd: Benedikt Halldórsson

C1078.00_02_52_03.Still026She is a witch!

 

Benedikt Halldórsson, 1.11.2020 kl. 16:53

9 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Benedikt Halldórsson, 1.11.2020 kl. 16:54

10 Smámynd: Grímur Kjartansson

Mér var hugsað til þess hvort  Biden væri að gefa því fólki sem átti í erfiðleikum með að borga reikninga um mánaðarmótin einhverja von um betri tíð og blóm í haga? 

Það eru ansi margir sem ekki hafa efni á að borgar 4000 kr fyrir 300 gr af kaffi og þeim finnst örugglega að þau séu afskipt

https://www.mbl.is/matur/frettir/2020/11/01/selur_kaffipokann_a_taepar_4_000_kronur/

Grímur Kjartansson, 1.11.2020 kl. 16:58

11 Smámynd: Loncexter

Ekki var Trump að neyða fólk á útifundi ? Fólk sem fer á útifundi án grímu í covid er vandamálið en ekki Trump.

Loncexter, 1.11.2020 kl. 18:14

12 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Hér eru skilaboð sem ég fékk í gærkvöldi frá bandarískum vini mínum, öldruðum fyrrum prófessor og skarpgáfuðum manni: Trump is definitely not hopeless. In fact, he's got a better record of accomplishment in four years than any President since Abraham Lincoln. The fact that he's crude, combative, egotistical, and loud is nothing but window dressing. I'll put up with that any day (and twice on Sundays) if he can keep restoring Americans' individual, economic, and political freedoms the way he's done since 2017. Trouble is, he's a huge threat to the so-called "deep state"---the career government bureaucrats, the politically appointed government executives, and the career legislators (like Joe Biden) who have fed too long at the public trough and can't stand that Trump is threatening that.

Þorsteinn Siglaugsson, 1.11.2020 kl. 21:38

13 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Höfundur er í góða skapinu í dag.

Auðvitað vill kórinn hér ekki átta sig á hvert hlutverk leiðtoga er.

Höfundur má svo auðvitað setja fram grín"rök" fyrir því að fleiri hafi dáið á vakt Biden. Grunar að frekar gætu hafa dáið úr þeim leiðindum sem hér er sett niður hjá höfundi. 

Sannur leiðtogi býður ekki upp á svona rugl, að koma fólki, misvitru auðvitað eins og kórinn hér að ofan,í slíkar aðstæður sem lágmarksfjarlægðarmörkum er ekki haldið.

Trump er ekki leiðtogi, hann er skemmtiatriði. Mögulega fallandi stjarna.

Þess vegna munu fleiri veikjast næstu sólarhringa á vatkinni hjá yðar há"göfga".

Á meðan klappar kórinn hér í takt.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 1.11.2020 kl. 21:40

14 Smámynd: Loncexter

Ekki fer mikið fyrir Trump töktum í stjórn íslands. Samt er faraldurinn hér kominn úr böndunum.

Loncexter, 1.11.2020 kl. 21:58

15 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Eg hef hvergi séð þessu flaggað nema á mbl. Allir fjölmiðlar með vott af sjálfsvirðingu sjá í gegnum þessa hlutdrægni. Sér eru nú hver vísindin. Enginn beint dáið af þeim sem mættu á fundina en talið að óbeint hafi hellingur dáið. Engin rök fyrir því. Hef ekki einu sinni séð neitt um að stór smit hafi komið upp á þessum kosningafundum og guð veit að við hefðum fengið að heyra það ef svo væri.

Önnur frétt er að Trump fylgjendur hafi reynt að þvinga rútu Bidens af veginum. Horfði á myndbandið og þar sjást bílar með ameríska fánann á lofti keyra fyrir framan og aftan rútuna og allt í gúddí. Þetta var fín afsökun til að fresta fundi og leyfa Biden að lulla í kjallaranum í einn dag til.

Er ekki að mæla með svona háttalagi, en þetta er þó saklausara en að ráðast á Trump kjósendur á götum úti eins og Antifa gerir stöðugt. Held að mogginn ætti að sækja fréttir sínar víðar en hjá CNN og NYT og sannreyna þær áður en þeir spúa þessum áróðri út.

Jón Steinar Ragnarsson, 1.11.2020 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband