Föstudagur, 2. október 2020
Trump, kófið og kosningarnar
Ef Trump fer í gegnum Covid-19 án öndunarvélar og aukaverkana verður það staðfesting á orðum hans að vinstrimenn og frjálslyndir nota Kínaveiruna til að hræða fólk og lama samfélagið - en það er sérgreinin þeirra.
Trump sigrar 3. nóvember.
Ef Trump leggst í öndunarvél en nær sér fær hann samúðarkjör 3. nóvember.
En það er alltaf þriðji möguleikinn.
Trump-hjónin með COVID-19 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sá sem styrkir vinstri hysteríska "spáði" því, að Trump verði sjálfdauður fyrir kosningarnar.
Benedikt Halldórsson, 2.10.2020 kl. 07:13
Fólk sem skiptir fólki í kúgara og kúgaða, sem á að skýra óréttlætið í heiminum, tekur ekki rökum vegna þess að "rökin" eru kúgunartæki hvíta mannsins!!! En hvað með flugvélar? Komu engin vísindi hvíta mannsins við sögu?
Eftir nokkurra ára gerjun eru kenningarnar stóra stefið í öllum kvikmyndum, leikritum, fjölmiðlun og í stjórnmálum. Hvítir karlmenn eru afmennsk úrhrök sem engin skal hlusta á - ef þeir koma ekki að gagni í að breiða út fagnaðarerindið.
Ofureinfaldar kenningarnar höfða til fáfræði, heimsku og siðblindu.
Benedikt Halldórsson, 2.10.2020 kl. 11:15
Hvítir karlar eru hataðir ef þeir neita að ganga í "flokkinn". Auðvitað sleppa sumir betur en aðrir. En það er ekkert þol fyrir mismunandi karakterum. Það er búið að gefa út hvernig hvítir karlar eiga að haga sér. Frávik eru illa séð. Úlfaldi er gerður úr mýflugu. Trump er mjög stór mýfluga.
Benedikt Halldórsson, 2.10.2020 kl. 11:40
Þeir byrja líklega á að rekja hvaðan þessi covidveira kemur.
Helga Kristjánsdóttir, 2.10.2020 kl. 16:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.