Miðvikudagur, 9. september 2020
Þöggun drengja - kvenmenning ræður ferðinni
Um 90 prósent kennara í grunnskólum eru konur. Drengir fá ekki karlkyns fyrirmyndir þar. Í framhaldsskólum er brottfall drengja um 30 prósent en stúlkna um 20 prósent. Þegar komið er í háskóla er kynjahlutfall nemenda þannig að karlar eru minnihlutahópur: 70 prósent háskólanema eru konur en minna en þriðjungur karlar.
Ísland á heimsmet í lágu hlutfalli karla í háskóla, segir Hermundur Sigmundsson, prófessor í lífeðlislegri sálfræði.
Hvers vegna?
Jú, skólakerfið er gegnsósa af kvenmenningu. Þöggun drengja byrjar strax í leikskóla og heldur áfram upp öll skólastig.
Stúlkum er kennt að vera stoltar en drengjum að skammast sín. Kvenmenningin talar með fyrirlitningu um ,,drengjamenningu" og býr til hugtök eins og ,,eitruð karlmennska."
Yfirtaka kvenna á skólakerfinu getur ekki endað vel.
Athugasemdir
Við sjáum afleiðingarnar greinilega hjá forsætisráðherra íslands
sem að virðist stöðugt blása til sóknar með gaypride-sjónarmiðum
þannig að gaypridefólk er farið að tröllríða öllum stofnunum
eins og lögreglu og skólakerfi.
Jón Þórhallsson, 9.9.2020 kl. 08:00
Og nú síðast þjóðkirkjuni.
Jón Þórhallsson, 9.9.2020 kl. 08:16
Það vantar greinilega KRISTILEGANN stjórnmálaflokk inn á alþingi
sem að hefur það á sinni stefnuskrá að standa vörð um KRISTIN GILDI.
Hið ljósbláa NÝJA-TESTAMENTI sem að allir eiga
og er MÁLGAGN ALLARA KRISTINNA MANNA
HÉR Á JÖRÐU fordæmir allar útgáfur af kynskiptingum á bls.273.
Jón Þórhallsson, 9.9.2020 kl. 08:58
Forvarnir?
Litlir strákar verða að miðaldra hvítum körlum sem menningin hatar enda hafa strákarnir farið svo illa með alla í heiminum öldum saman. Þeirra er hamfarahlýnunin, ekki stelpna (Greta Thunberg). Þeir erfa ímyndaðar syndir feðranna ef þeir eru hvattir til dáða.
Benedikt Halldórsson, 9.9.2020 kl. 09:03
Styttum af körlum er steypt af stóli. Karlar í sögum og kvikmyndum sem ekki eru aular og ógeð fá ekki styrk. Jesú er með brjóst.
Benedikt Halldórsson, 9.9.2020 kl. 09:13
Til að losna undan ásökunum um rasisma og nasisma og eitraða karlmennsku bjóða vinstri sinnaðir, alþjóðavottaðir og vígðir flokkar upp á afeitrun karlmenneskunnar. Aðeins þarf að trúa á hamfarahlýnun af mannavöldum og allt hvaðeina sem alvitrir vinstri sinnaðir fjárfestar boða í gegnum Sameinuðu þjóðirnar. Sá sem trúir á heimsmarkmiðin er hólpinn þótt hann sé ekki með brjóst. Æðri máttur hefur gefið okkur frest til ársins 2030 í loftslagsmálum.
Jesú er gengin í Samfylkinguna.
Benedikt Halldórsson, 9.9.2020 kl. 09:50
Þó að Jesú væri almennt fylgjandi JAFNARI LÍFSKJÖRUM
að þá er ég ekki viss um að hann væri skráður félagi í samfylkingunni
þar sem að samfylkingin aðhhyllist hjónabönd samkynhneigðra
sem að stríðir gegn KRISTINNI TRÚ / NÝJATESTAMENTINU á bls 273. (því bláa).
Jón Þórhallsson, 9.9.2020 kl. 10:25
Hættið þessu væli, það erum við sem berum ábyrgð á að láta kerlingarnar taka yfir, munum að flestar kerlingar í dag eru karlar illa farnir af plastmengun, og það er okkar að bregðast við.
Og skortur á þeim viðbrögðum er aldrei annarra sök.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 9.9.2020 kl. 13:44
Ég man glöggt hversu virðulegir karlkennararnir voru í GaggóAust á minni tíð. 1950. Stóri Rauður, Litli Rauður, Sveinbjörn Sigurðsson, GUÐMUNDUR ÞORlÁKSSON,ÁRNI MAGISTER ENSKUMAÐUR. HELGI ÞÓRLÁKSSON, Björvin Magnússon, GUNNGEIR PÉTURSSON. Ingimar skólastjóri ......,Ástráður Sigursteinsdórsson. Meirihluti kallar og svo kellingarnar færri. Ætli nú séu nokkrir kallar eftir?
Halldór Jónsson, 10.9.2020 kl. 01:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.