Föstudagur, 3. júlí 2020
Afvopnun og hagsæld fylgir Trump
Trump kallar bandaríska hermenn heim, m.a. frá Þýskalandi, og dregur úr hernaðarumsvifum í miðausturlöndum. Trump býr til störf í Bandaríkjunum í miðri farsótt.
Frjálslyndir vinstrimenn eru aftur herskáir. Fjölmiðlar á þeirra vegum halda áfram að dingla rússagrýlunni framan í Trump og lemja stríðshúðir líkt og í kalda stríðinu.
Trump er aðeins verkfæri. Kalda stríðinu lauk fyrir 30 árum og fyrir aldamót var alþjóðahyggjan gengin sér til húðar. Trump færir breyttar forsendur í pólitíska stefnu.
Frjálslynda vinstrið, sem einu sinni þóttist friðarsinnað, getur ekki á sér heilu tekið og efnir til innanlandsóeirða - Svört líf skipta máli - og heimtar blóðsúthellingar á fjarlægum slóðum.
Heimsumskiptin, sem Trump er verkfæri fyrir, eru líklega ekki jafn stór og franska byltingin, sem þurfti sinn Napoleón. Engu að síður eru þau nokkuð veruleg og fyrri hálfleikur aðeins hálfnaður.
Þetta eru sögulegar tölur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það verður spennandi að lesa bókina hennar "Mary frænku".
Hörður Þormar, 3.7.2020 kl. 16:45
Hið svokallaða "frjálslinda vinstrið", er fólk sem fær peninga frá nasistaríkinu Kína .. beint, eða óbeint. Þetta "frjálslynda" fólk, dylur gyðinga hatur sitt á bak við "blökkumannaást", meðan þeir veita blökkumönnum BNA bjarnargreiða og eyðileggja framtíð þeirra. Þeir kalla Trump fyrir "rasista", á meðan þeir sjálfir fylgja sér á bak við morð á miljónum Ughyuir búum, falun gong trúaflokknum ... útrýmingu innan kína á minnihlutahópum. Fylkja sér á bak við útrýmingarbúðir innan Kína .. á sama tíma og þeir kasta skít, í þá vestræna búa sem veittu þeim frelsi undan "serf"-dom, þrældómi og mannsali, sem tíðkaðist í þá tíð.
Í hinu svokallaða "CHAZ", voru ungir blökkumenn myrtir, unglingar ... þetta er dæmigert, fyrir hina svokölluðu "liberalista". Sem í raun eru anti-semitar, nazistar og fasistar ... en eins og Churchill sagði, fasistar í framtíðinni mun kalla sig "anti fasista".
Örn Einar Hansen, 3.7.2020 kl. 20:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.