Sunnudagur, 26. apríl 2020
Víðir tók sér frídag, kom tilbaka pólitískur
Í gær tók Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum sér frí frá daglegum blaðamannafundi farsóttar-þríeykisins.
Víðir kemur þrælpólitískur tilbaka; mannkynið í húfi, samfélagssáttmáli og ritstýrðir fjölmiðlar eru meðal orðanna sem flutu í dag úr munni geðþekka lögreglumannsins.
Notaði Víðir frídaginn í sellufund með Vinstri grænum? Tók einhver úr óreiðu-teymi Kötu Jak. hús á Víði í gær til ræða landsins gagn og nauðsynjar á tímum drepsóttar?
Víðir virkar vel sem grandvar embættismaður. En um leið og hann verður málpípa pólitískra skoðana, en ekki heilbrigðar skynsemi, hverfur trúverðugleikinn.
Vonandi þarf Víðir ekki annan frídag í bráð.
Sameiginlegt verkefni alls mannkyns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Alveg rétt Pall, orðfærið minnir óþægilega mikið a orðfæri forvera-forvera-Vinstri grænna.
Ragnhildur Kolka, 26.4.2020 kl. 19:01
Á hann nú þetta skilið?
Sigurður I B Guðmundsson, 26.4.2020 kl. 20:01
Égles oft pistlana þína og finnst þú yfirleitt komast vel að orði. Og stundum eru sjónarmið þín að mínum dómi athyglisverð.
En þessi gagnrýni á Víði Reynisson er ósanngjörn og í meðallagi smekkleg. Ekkert af því sem þú vænir hann um varð ég var við í máli hans í dag.
Þórhallur Pálsson, 26.4.2020 kl. 21:22
Mannkynið, eða í það minnsta tugmilljónir fátæks fólks, er í húfi vegna aðgerða á borð við þær sem nefndur lögreglumaður hefur með höndum að framfylgja hérlendis. Útgöngu- og samgöngubönn munu tvöfalda fjölda þeirra sem eru undir hungurmörkum samkvæmt SÞ.
Þorsteinn Siglaugsson, 26.4.2020 kl. 23:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.