Mánudagur, 6. janúar 2020
Kjarnorkuvopn og Íran: helförin II
Yfirlýst stefna klerkastjórnarinnar í Íran er að gjöreyða Ísraelsríki. Í Teheran eru hommar teknir af lífi opinberlega.
Kjarnorkuvopn í höndum múslímaklerkanna er ávísun á hamfarir á heimsvísu sem veröldin hefur ekki séð síðan Hitler var og hét.
Þjóðverjar eru næmir á sögulegar hamfarir. Aðalritstjóri Bild skrifar þakkarnótu til Trump fyrir aftökuna á Soleimani, höfundi útþenslustefnu Íran. Í Welt er harmað að Þjóðverjar standi enn á ný röngu megin sögunnar með því að styðja ekki Trump að losna við yfirgang írönsku klerkanna.
ESB-ríkin stóðu að samkomulagi við Íran um kjarnorkuvopn ásamt Obama forseta Bandaríkjanna. Söguleg hliðstæða samkomulagsins er Munchen 1938 þegar Bretland og Frakkland gáfu Hitler frítt spil í Mið-Evrópu. Þegar illskan mætir frjálslyndi sigrar hún.
Trump sagði upp samningnum við klerkana í Teheran. Sögukaflinn sem skrifaður er um þessar mundir er framhaldssaga um hvernig eigi ekki að láta illþýði stjórna heiminum.
Íranar undirbúa uppsögn kjarnorkusamkomulagsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég legg til að SAMEINUÐUÞJÓÐIRNAR verði látnar greiða atkvæði um þetta mál
á sínum vettvangi. = Til þess voru þær stofnaðar:
Til þess að leysa alþjóðleg deilumál.
Jón Þórhallsson, 6.1.2020 kl. 08:38
Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 6.1.2020 kl. 09:01
"We didn't have this problem with Iran during the Obama deal. Trump wanted war, and now he's got it; and, tragically, our brave servicemembers will pay the price for Trump's deadly war of choice."
Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 6.1.2020 kl. 09:05
Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 6.1.2020 kl. 09:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.