Föstudagur, 29. nóvember 2019
RÚV játar: umræðan er okkar fag, ekki fréttir
Í gærkvöld birtir RÚV yfirlýsingu. Þar segir m.a.:
Ásakanir Samherja í garð fréttamannsins um ósannindi eru fráleitar. Virðast í raun snúast um tilraun fyrirtækisins til að afvegaleiða umræðuna...
Það var og, ,,afvegaleiða umræðuna".
Umræða er skoðanir og ályktanir. Fréttir eru allt annað. Þær segja frá staðreyndum.
Einn af samstarfsmönnum RÚV í Samherjamálinu, Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks, útskýrir hvernig staðið er að ,,umræðu" af þessu tagi:
Ég held líka almennt séð að þessi birting og þessi umfjöllun sé ákveðinn prófsteinn og prófraun á íslenskt samfélag, og einnig á íslenska fjölmiðla, hvernig þeir matreiða og verka þessi mál, sérstaklega með tilliti til þess hvernig eignarhaldið er þar víða.
Það á sem sagt að ,,matreiða og verka" málsatvik til að þau falli að fyrirframgefinni niðurstöðu. Allir fjölmiðlar verða að taka þátt - ,,matreiða og verka" - til að umræðan nái tilgangi sínum: að sanna sekt Samherja. Sem var fyrirfram ákveðin.
Á Efstaleiti er orðið ,,umræða" notað um þá sannfæringu að ásökun jafngildi sekt.
RÚV snýr meginreglu réttarríkisins á hvolf. Nú skal sá ákærði sanna sakleysi sitt. Gildir um alla. Nema RÚV, auðvitað.
![]() |
Fráleitar ásakanir Samherja um ósannindi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"Fréttir" af Samherja í Afríku er partur af valdabrölti á heimsvísu. Áður virtir fjölmiðlar út í heimi sem fólk treysti, eru nú fyrirlitnir vegna þess að þeir létu teyma sig á asnaeyrunum. RÚV er með sömu asnaeyrun.
Evrópusambandið lætur eins og það sé nýlenduveldi og sendir út um allan sinn eigin heim, yfirlýsingar, fyrirskipanir og hótanir að hætti drottnara - af nýja skólanum.
Afríka er vinsæl til að flagga dyggðum góða fólksins sem myndar óformlegan "baráttuher" en einn þriðji þingmanna ESB eru "skráðir" félagar með "réttar" skoðanir í loftslagsmálum sem ráða oft úrslitum.
Evrópusambandið lýsir öðru hvoru yfir neyðarástandi til að hræða alþýðuna. En CO2 er kúgunarsvipa evrópskra nýlenduherra en öfugt við gömlu kúgarana, er kynjaskipting jöfn, auk þess sem miklar framfarir hafa orðið í "áróðri". Tekist hefur með hjálp auglýsingastofa og fjölmiðla í sama liði að skapa þá "ímynd" að Herrar heimsins séu bara að hugsa um hag þeirra sem minna mega sín - í skiptum fyrir vitræn völd í Afríku og víðar. Herrar af báðum kynjum sætta sig ekki við lýðræði almúgafólks ef niðurstaða kosninganna er á skjön við "heimssýn" þeirra sjálfra. Þeir berjast því með kjafti og klóm fyrir "lýðræði" og þylja upp langan lista dyggða sinna. Eru t.d. á móti atvinnuleysi unga fólksins og arðráni vondra kapítalista í Afríku!
Herrarnir hafa sama "við erum bestir í heimi" viðhorfið og gömlu skúrkarnir.
Við vorum fátæk, svöng og kúguð í mörg hundruð ár. Er það ekki hið eðlilega og náttúrulega skipan mála. Þá var engum mat sóað, jafnvel gamlir sauðskinskór voru étnir. Þá vorum við náttúruvæn og sjálfbær - og hlýðin.
Nú er "glæpur gegn mannkyni" að efast um skipanir stiftamtmanna ESB um aðgerðir í "loftslagsmálum" sem kallar á aðgerðir vegna "óhlýðni".
Vegna CO2 losunar skipa og flugvéla biðja Herrarnir alla þá sem eru skráðir á COP25 loftlagsfund Sameinuðu þjóðanna sem verður haldin í Madrid, annan til þéttanda desember, að leggja nú þegar af stað til að spara bensín - fótgangandi eða á reiðhjóli. 430 samþykktu það en 190 ætla að húkka far.
Nei, enn einn þotufundurinn er til að draga úr sóun almúgafólks á flugvélabensíni. Bensín er lúxus og takmörkuð auðlind. Það þarf að draga úr græðgi alþýðunnar í heiminum en hún er svo sólgin í ónáttúrulegt dót sem verður bara að sorpi.
Lúxusvarningur og flugvélabensín er bónus fyrir vel unnin störf í þágu mannkyns. Einhver þarf að fórna sér fyrir hina og mæta á neyðarfundina á þotum.
Benedikt Halldórsson, 29.11.2019 kl. 09:37
Fyrir hvern starfar RÚV eða Andri Snær? Það vantar ekki hrokann og yfirlætið. Það rignir upp í nefið.
Andri Snær telur það glæp gegn mannkyninu og jörðinni í heild sinni að efast í loftslagsmálum. Hann leggur til "aðgerðir" gegn þeim sem neita að ganga "gæsagang".
Hann hneykslast á RÚV fyrir að hafa vogað sér að leiða fram tvo "afneitunarsinna" inn í "loftslagsumræðu" elítunnar. Rökin? Hann hafi sko engar forsendur til að efast um íslenska vísindamenn, nema íslenska veðurfræðinginn sem reynt var að niðurlægja svo að "umræðan" mengaðist ekki.
Hvað á að gera við 700 vísindamenn sem eru með óboðlegar skoðanir. Fangelsa þá? Senda þá í meðferðarbúðir? Jú, þeir hafa svo sem verið hraktir úr starfi og niðurlægðir og eru kallaðir afneitunarsinnar að hætti fasista.
Auðvitað er það fasismi að telja það glæp gegn mannkyni að efast.
Benedikt Halldórsson, 29.11.2019 kl. 17:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.