Þolendur og gerendur, sekt og sakleysi

Sá sem meiðir annan með athöfnum eða orðum er gerandi en þolandinn er sá sem meiðist.

Ef einhver er ásakaður um að vera gerandi, en er það ekki, verður meintur gerandi sjálfkrafa þolandi og meintur þolandi er orðinn að geranda.

Munurinn liggur í sekt og sakleysi. Og eins og flest fullorðið fólk veit er iðulega í samskiptum fólks fjarska erfitt að gera þar upp á milli. Þess vegna bjuggum við til kerfi, kallað réttarríkið, þar sem meginforsendan er að sérhver er saklaus uns sekt er sönnuð.

Ásökun jafngildir ekki sekt. Það þarf að sýna fram á að ásökunin sé sönn. Skrítið hve jafnaugljós atriði flækjast fyrir fólki. 


mbl.is Þolendum beri engin skylda til að stíga fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hvergi er það greinilegra en í fótbolta.Meintur brotamaður þrætir og skammast í dómara,það er ekki fyrr en myndbandsupptaka sannar sekt hans eða sakleysi! Þessu verður ekki komið við í okkar leik og lífi,en nú fer ég að horfa á leik.

Helga Kristjánsdóttir, 30.9.2019 kl. 19:02

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ætli þessi 29 kvenna hópur yrði ekki þakklátur að réttarríkið tryggði þeim réttláta málsmeðferð ef á einstaklinga hans yrði ráðist með óljósum ásökunum?

Ragnhildur Kolka, 30.9.2019 kl. 20:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband