Þriðjudagur, 17. september 2019
Eitt heimsríki, ein mannréttindi og gott veðurfar, takk
Snjallt hjá mannréttindasamtökum að veita Loftslags-Grétu verðlaun með þeim rökum að nú ógnar hamfarahlýnun veru manna á jörðinni og án mannkyns eru engin mannréttindi.
Rökleg afleiðing af trú á manngert veður er að eitt heimsríki tryggi veðursæld á öllu byggðu bóli. Höfuðstöðvarnar yrðu vitanlega í New York, til að tryggja efnahagslegt réttlæti, og mannréttindaskrifstofan í Mekka, Sádí-Arabíu, myndi sjá um jafnræði kynjanna og ólíkra trúarbragða.
Þeir sem enn eru með öllum mjalla taka eftir felufréttum um að helsti höfundur kenningarinnar um manngert veðurfar, Michael Mann, er afhjúpaður sem svindlari fyrir dómstólum en hafði áður verið negldur fyrir vísindafúsk í heimi akademíunnar.
Og það snjóar snemma í hlýlandi Loftslags-Grétu. En hey, frosin ofankoma þegar enn á að heita síðsumar er sönnun á manngerðri hlýnun. Því hvítt er svart.
Thunberg samviskusendiherra Amnesty | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekki nóg með það,hlýtt er á fart já hvínand;eins og þeir boða,
eigum nokkur ár eftir segja vísviðundrin. Kristnir menn trúa á frelsara sinn og vita að hann er hér sá sem hastaði í krafti sínum á foráttuóveður,þegar lærisveinar hans hræddust það.
Helga Kristjánsdóttir, 18.9.2019 kl. 03:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.