Föstudagur, 2. ágúst 2019
Frakkar steiktir, Englendingar bara svalir
Falsfrétt mbl.is, meðfylgjandi, er að manngert veður sé um það bil að steikja Frakka. Handan Ermasundsins er England sem býr að hvað lengstu samfelldu hitamælingum á byggðu bóli.
Meðalhitinn í júlí nýliðnum var 17,5 C, sem er 1,3 gráðum kaldara, já kaldara, en árið 1783.
En falsfréttir fjölmiðla eru ábyggilega áreiðanlegri en raunmælingar á hitastigi.
Óhugnanleg gervispáin rættist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Vinstrimenn og naívistar verða að hafa eitthvað til að valda heimsenda, fyrst að kjarnorkuvopnin á heila þeirra náðu ekki að enda þann heim sem forstjóri IBM sagði að þyrfti ekki nema á fimm tölvum að halda.
Og það reyndist heldur ekki rétt með farið hjá konunglegu vísindaakademíunni í Lundúnum að röntgengeislar yrðu afhjúpaðir sem svindl.
Það þyrfti eiginlega að taka upp vísindalegar læknisaðferðir geðlækna frá því snemma á 20. öld; þ.e. setja fólk í spennitreyjur og sprauta á það klakavatni eða þá setja það í langt klakabað.
Fréttahitinn er greinilega orðinn of hár. Nema að um dagbækur draumfara sé hér bara að ræða. Þær selja stundum vel.
Gunnar Rögnvaldsson, 2.8.2019 kl. 15:05
Kannski er það orðið þannig ekki er lengur hægt að nota vísindamenn í hvítum sloppum til að selja til dæmis pakkamat frá Dr. Oetker og Heinz, eða næringarlausan barnamat í dós frá Dr. Badedaz, heldur er einungis hægt að nota þá í dag sem einmenningskynið vísindamenn (sem allir hugsa og segja það sama, en sem þeir hafa auðvitað aldrei gert og gera ekki enn), til að selja þörfina á nýjum glóbal Sovétríkjum til að bjarga mannkyninu frá kapítalisma. Hægt er að sjá til dæmis fyrir sér nýja kynslóð sovéskra vísindamann í hvítum slopp, sem þeir fengu að láni frá herr Hitler. Eða bara Napóleon sjálfan.
Gunnar Rögnvaldsson, 2.8.2019 kl. 15:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.