Mánudagur, 1. júlí 2019
Þórhildur Sunna í siðleysinu
Siðareglur alþingis var ekki hægt að nota til að berja á Miðflokknum, af því leiðir má ekki hegna mér fyrir að þjófkenna Ásmund Friðriksson, segir Þórhildur Sunna efnislega í málsvörn sinni.
Röklegt samhengi málsvarnarinnar er ekkert. Þórhildur Sunna veit einfaldlega ekki út á hvað siðareglur ganga. Í hennar huga eru siðareglur valdatæki til að berja á fólki. En siðareglur eru í reynd leiðarvísir um hvernig starfi skuli sinnt - í þessu tilfelli alþingismanna.
Með því að þjófkenna Ásmund fór Þórhildur Sunna út fyrir samþykkt mörk skráðra siðareglna. Ef mannvit og siðvit Þórhildar Sunnu næði máli bæðist hún afsökunar á orðum sínum. Og málið væri dautt.
En Þórhildur Sunna berst um hæl og hnakka í siðleysi sínu og kallar forsætisnefnd alþingis gjörspillta. Sumum er það einfaldlega ekki gefið að líta í eigin barm. Leitt er að slíkt fólk sitji á alþingi.
Íhugar að leita til Evrópuráðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Siðlausa Sunna
hljómar eins og tóm tunna
berst um á hæl og hnakka
en minnir á lítinn krakka.
Richard Þorlákur Úlfarsson, 1.7.2019 kl. 09:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.